Hello Savers!!🚀
Your Dashboard is Here, Ready for You!!
Connect all your Twitter Accounts to your Notion Databases 🪢
And, and you decide what is next, with this platform, everything you want is possible 🔥
GET STARTED NOW 👇
Gengur vel? Gengur illa? Hvort heldur er þá hlýtur besta leiðin fram á við að felast í því að eyða sem allra minnstri orku í það sem við höfum ekki stjórn á og sem allra mestri í það sem við höfum eitthvað um að segja! Áfram gakk.
Ég fjalla um öfundina, hamingjuna og hvað hefur breytt mér til batnaðar í dag í þremur molum sem heita samt eitthvað allt annað sem sjá má... stakaconsulting.com/orginal-flaedi…
Handboltaleikur. Tvö lið. Sömu reglur. Ólík taktík. Brugðist við gengi og keppinautum. Stundum jafnvel með engan í marki.
Atvinnulífið. Mörg lið. Sömu reglurnar…
Hver er þín nálgun? Hefurðu hangið í sama leikkerfinu lengi? Er kominn tími á nýja taktík?
Góður vinur sagði við mig í vikunni: “Ég er ekkert annað en stór hundur sem þarf að viðra reglulega!” Ég kinkaði kolli. Langaði mest að dilla rófu til samþykkis. Verð að muna að viðra mig í dag!
Þessi dásemdar dagur! Góður dagur til að tala hlýlega til sín. Þakka sér. Brosa létt. Anda djúpt. Vinna í einu. Skila frá sér. Hrósa sér, halda áfram. Brosa aftur út í annað. Þessi dásemd.
Þú ert dásemd!
Útsölutíminn. Tími til að bruðla um allan bæ. Verst hve fátt er alveg frítt. Eða hvað? Er ekki allt það besta einmitt alveg ókeypis? Hugrekki og dirfska. Væntumþykja og vinátta. Jú, svei mér þá. Höldum hátíð. Grípum tækifærið. Bruðlum eins og enginn sé morgundagurinn!
Ef þú velur klukkustundum ársins verkefni af sömu kostgæfni og þú valdir þér konfektmola yfir hátíðarnar, þá eru miklar líkur á að eftirbragð ársins verði bæði sætt og gott.
Við ættum ekki að dæma árið af uppskerunni einni saman. Horfum heldur til þess hvers við plöntuðum, hvað við vökvuðum, hverju við sinntum. Stofnar eru fæstir sterkir frá fyrsta degi.