Óskar Ófeigur

32 posts

Óskar Ófeigur

Óskar Ófeigur

@oojstats

Íþróttafréttamaður á Sýn (Vísir og S2 Sport) og tölfræðiáhugamaður.

Bergabung Mayıs 2012
132 Mengikuti655 Pengikut
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Ægir Þór Steinarsson í tveimur leikjum sínum í bikarúrslitunum 2020: 29 stoðsendingar, 3 tapaðir boltar og +40 í plús og mínus. #körfubolti #karfan
IS
0
3
18
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Helena Sverrisdóttir kom að fyrsta Íslandsmeistaratitli Hauka 2006 og fyrsta Íslandsmeistaratitli Vals 2019. Í lokaúrslitunum fyrir 13 árum var hún með 18,0 - 13,0 - 9,3 (stig-fráköst-stoðs) að meðaltali í finals en í ár var hún með 27,7 - 11,0 - 7,0 í leik. #körfubolti #karfan
IS
2
3
38
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Fjögur félög Íslandsmeistarar í kvennakörfunni á síðustu fjórum árum. Snæfell 2016, Keflavík 2017, Haukar 2018 og Valur 2019. Gerðist líka frá 2009 til 2012 (Haukar 2009, KR 2010, Keflavík 2011 og Njarðvík 2012). #körfubolti #karfan
IS
0
2
12
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Valur á nú Íslandsmeistaralið í körfubolta í fyrsta sinn í 433 mánuði og 6 daga (36 ár, 1 mánuður og 6 dagar). Valskonur unnu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í dag 27. apríl 2019 eða 13.186 dögum eftir að karlalið Vals Íslandsmeistari síðast 21. mars 1983. #körfubolti #karfan
Óskar Ófeigur tweet media
IS
0
1
10
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson var jafngamall og Tryggvi Snær Hlinason er núna árið 2004. Hann var þá kominn með 152 stig í 14 landsleikjum. Tryggvi er kominn með 199 stig í 32 landsleikjum eftir leikinn í kvöld. Framtíðin #TakkHlynur #Korfubolti
IS
1
1
24
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Jón Arnór Stefánsson var jafngamall og MartinHermannsson er núna árið 2007. Hann var þá kominn með 476 stig í 40 landsleikjum. Martin er kominn með 637 stig í 64 landsleikjum eftir leikinn í kvöld. Framtíðin. #TakkJón #Korfubolti
IS
0
1
29
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson endar landsliðsferilinn með 1276 stig í 125 landsleikjum (10,2 í leik). Jón Arnór Stefánsson endar með 1243 stig í 100 landsleikjum (12,4 í leik). #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
15
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Jón Arnór Stefánsson stigahæstur í síðasta landsleiknum (17 stig) og Hlynur Bæringsson frákastahæstur (12). Hlynur er +31 á þeim 26:55 sem hann spilaði en Jón Arnór var +25. Strax farinn að sakna þeirra. #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
26
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Dagur Kár Jónsson varð í kvöld 69. leikmaðurinn sem nær því að spila landsleik með Hlyni Bæringssyni og 62. leikmaðurinn sem nær því að spila landsleik með Jóni Arnóri Stefánssyni. Fyrirmyndarlandsliðsmenn. #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
3
35
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Jón Arnór Stefánsson er kominn með 11 stig á móti Portúgal sem þýðir að hann hefur skorað yfir 300 stig í landsleikjum fyrir alla landliðsþjálfara sína eða Sigurður Ingimundarson (320 stig), Peter Öqvist (317), Friðrik Ingi Rúnarsson (300) og Craig Pedersen (300 ...). #TakkJón
IS
0
0
14
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson er kannski bara með 2 stig í fyrri hálfleik á móti Portúgal en Ísland er +15 með hann inn á vellinum á 15:23 mínútum spiluðum eða næstum því +1 stig á mínútu. Mikilvægið í litlu hlutunum út um allan völl. #Korfubolti
IS
0
1
10
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Ísland yfir á móti Portúgal í 19 mínútur og 52 sekúndur í fyrri hálfleik af 20 mögulegum. 60% skotnýting í fyrri hálfleiknum (18 af 30) og Ísland +12 í stigum inn í teig (18-6), +5 í stigum af bekknum (17-12) og +13 í stigum eftir tapaða bolta mótherja (13-0). #Korfubolti
IS
0
1
9
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson var í kvöld í byrjunarliði landsliðsins í 112. sinn. Hann hefur bara þrettán sinnum komið inn af bekknum. Jón Arnór Stefánsson var í kvöld í byrjunarliði Íslands í 88. skipti. Hann hefur bara tólf sinnum komið inn af bekknum. #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
20
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson léku báðir fyrsta landsleikinn í treyju númer fimmtán. Jón Arnór hefur spilað flesta landsleiki í treyju níu (77 af 100) en Hlynur hefur spilað flesta landsleiki í treyju númer átta (82 af 125). #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
2
39
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Þeir sem léku með Hlyni Bæringssyni í fyrsta landsleiknum á móti Makedóníu í Skopje 23. feb 2000 voru Falur Harðar, Friðrik Stefáns, Fannar Ólafs, Páll Axel Vilbergs, Hjörtur Harðar, Birgir Örn Birgis, Teitur Örlygs, Herbert og Helgi Jónas. #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
14
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Þeir sem léku með Jóni Arnóri Stefánssyni í fyrsta landsleiknum á móti Noregi í Keflavík 1. ágúst 2000 voru Falur H, Friðrik Stefáns, Sævar Sig, Fannar Ólafs, Baldur Ólafs, Gunnar Einars, Jón Arnar Ingvars, Birgir Örn, Jakob Sig, Herbert og Logi Gunnars. #TakkJón #Korfubolti
IS
0
1
16
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Leikurinn í kvöld er 30. landsleikur Jóns Arnórs Stefánsonar undir stjórn Craig Pedersen. Hann spilaði 26 landsleiki fyrir Friðrik Inga Rúnarsson sem valdi hann fyrstur en spilaði síðan 24 leiki fyrir Sigurð Ingimundarson og 20 undir stjórn Peter Öqvist. #TakkJón #Korfubolti
IS
0
1
9
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson hefur með leiknum í kvöld spilað 52 landsleiki undir stjórn Craig Pedersen. Hann spilaði 40 leiki undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar, 26 leiki fyrir Peter Öqvist, 4 leiki fyrir Friðrik Ragnarsson og 3 leiki fyrir Friðrik Inga. #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
15
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Hlynur Bæringsson hefur spilað flesta landsleiki á móti Belgíu eða tíu talsins. Hann hefur spilað átta landsleiki á móti Póllandi og sjö leiki á móti bæði Hollandi og Danmörku. #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
12
0
Óskar Ófeigur
Óskar Ófeigur@oojstats·
Jón Arnór Stefánsson hefur spilað flesta landsleiki á móti Danmörku og Finnlandi eða sjö leiki á móti hverri þjóð. Hann hefur síðan spilað 6 landsleiki á móti Hollandi og Belgíu. #TakkJón #TakkHlynur #Korfubolti
IS
0
1
6
0