Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University

1.4K posts

Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University banner
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University

Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University

@haskolinn

Við sköpum, menntum og miðlum þekkingu til að auka lífsgæði. // We create, educate and communicate knowledge to increase quality of life.

Menntavegur 1 Katılım Mayıs 2010
100 Takip Edilen1.4K Takipçiler
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
LAUST STARF // FORSTÖÐUMAÐUR SAMSKIPTA Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum stjórnanda til að leiða markaðs- og samskiptamál háskólans. Viðkomandi mun fara fyrir öflugum hópi sérfræðinga á sviði hönnunar, framleiðslu, textavinnslu, upplýsingamiðlunar, viðburðastjórnunar og vefþróunar innan háskólans. Forstöðumaður samskipta ber ábyrgð á stefnumótun, þróun og rekstri einingarinnar. Starfsfólk samskipta starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og annað starfsfólk HR og stuðlar að því að koma starfsemi og áherslum háskólans á framfæri með fjölbreyttum hætti gegnum upplýsingamiðlun, tengsl og kynningarstarfsemi. jobs.50skills.com/ru/is/24733
IS
1
0
0
896
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Desember og jólin geta verið tími gleði, en líka tími mikillar streitu. Langar þig að læra að byggja upp andlega þrautseigju til að takast á við streitu og erfiðleika? Opni háskólinn í HR býður upp á stutt og gagnlegt námskeið í fjarnámi hinn 1. desember. Þar mun sálfræðingurinn Sigrún Þóra Sveinsdóttir kenna aðferðir eins og hugleiðslu, jákvæðar tilfinningar og öndunartækni sem hægt er að nýta til þess að hafa áhrif á streituviðbragðið, byggja upp þrautseigju og njóta jólanna. oh.ru.is/namskeid/passa…
IS
0
0
0
859
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í launavinnslu og frágang launa. Launafulltrúi veitir ráðgjöf, er í góðum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur í HR og vinnur náið með sérfræðingum á fjármála- og mannauðssviði. Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Um er að ræða 100% starf. jobs.50skills.com/ru/is/24524 #atvinna #vinna #lauststarf
IS
0
0
1
545
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Nýjasti viðmælandi Verkfræðivarpsins er Dr. Marta K. Lárusdóttir, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Marta er einn helsti sérfræðingur landsins í Agile-verkefnastjórnun, sem hefur víða rutt sér til rúms í atvinnulífinu á síðustu árum. Marta er jafnframt brautryðjandi vísindamaður í rannsóknum á sambandi manns og hugbúnaðar. Hún segir hér á lifandi og skemmtilegan hátt frá því hvernig þetta áhugaverða samband hefur þróast innan hugmyndaheims verkefnastjórnunar. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli. UM HR HLAÐVARPIÐ HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple Podcasts og iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson. SPOTIFY open.spotify.com/episode/3an6dw…
IS
0
0
0
484
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
HR hlaðvarpið er rödd Háskólans í Reykjavík og mikilvægur hluti af vísindamiðlun háskólans til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. HR hlaðvarpið er að finna á Spotify, Apple iTunes og Podcasts og í öllum helstu streymisveitum hlaðvarpa.
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet media
IS
0
0
2
403
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
VERKEFNASTJÓRI UPPLÝSINGATÆKNI Í HR Háskólinn í Reykjavík leitar að sterkum verkefnastjóra í blandað hlutverk kerfisgreinanda (Systems Analyst) og kerfiseiganda (Product Owner). Viðkomandi verður lykilpersóna í samstarfi við lítið en kraftmikið teymi þróara sem vinna við framþróun kerfisumhverfis HR. "Þú ert brúin á milli notenda og tækninnar svo að þú ert altalandi bæði á tungumáli tækninnar sem og notenda. Ekki er verra ef að þú hefur góðan skilning á þörfum háskóla- og rannsóknarumhverfis eins og fyrirfinnst hjá HR. Þitt hlutverk er að hlusta á notendur, forgangsraða þeirra óskum og kröfum, en einnig að greina og brjóta niður þá verkhluta sem að við ákveðum að framkvæma. Hlutverk þitt innifelur einnig verkþætti eins og innleiðingar, kennslu á ný og eldri kerfi og samstarf við virkan hóp notenda," segir meðal annars í auglýsingu fyrir starfið. Nánari upplýsingar veitir Kristján H Hákonarson, (kristjanh@ru.is), forstöðumaður upplýsingatækni Háskólans í Reykjavík. Umsóknum skal skilað á atvinnuumsóknavefsvæði HR. Allar fyrirspurnir og umsóknir eru trúnaðarmál. Smelltu hérna til að skoða starfið og sækja um: jobs.50skills.com/ru/is/24353
IS
0
0
0
272
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Dr. Ronald Hanson, prófessor við QuTech-rannsóknastofnun Delft University of Technology í Hollandi, hélt fyrir skemmstu fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík á vegum verkfræðideildar í tilefni af 25 ára afmæli HR árið 2023. Af þessu tilefni ræðir dr. Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor við verkfræðideild HR, við Ronald um rannsóknir hans á undirstöðum skammtafræðinnar og hagnýtingar á henni. open.spotify.com/episode/3kaiiq…
IS
0
0
0
294
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
VERKFRÆÐIVARPIÐ // 10. ÞÁTTUR: DR. ÁRMANN GYLFASON Dr. Ármann Gylfason, nýr deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er viðmælandi Verkfræðivarpsins að þessu sinni. Sérsvið Ármanns er varma- og straumfræði og eftir hann liggur fjöldi alþjóðlegra vísindagreina. Nú hefur Ármann tekist á hendur nýtt hlutverk sem deildarforseti Verkfræðideildar HR. Í viðtalinu segir hann frá sjálfum sér, kennslunni og rannsóknunum við HR og hvernig allt þetta tvinnast saman. Hann leggur áherslu á mikilvægi verkfræði í samfélaginu og að verkfræðikennsla höfði til unga fólksins með því að gefa því tækifæri til að fást við skemmtileg og krefjandi viðfangsefni sem það hefur sjálft áhuga á. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli. UM HR HLAÐVARPIÐ HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple Podcasts og iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson. SPOTIFY open.spotify.com/episode/1xGpvm…
IS
0
0
0
235
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Dr. @HughFullagar has been hired as a professor at the Sports Science Department of Reykjavik University. Dr. Hugh joins RU from the University of Technology Sydney, Australia. His research interests focus on evidence-based methods to improve performance and reduce injury in team sport and industry (armed forces, firefighters and other physically demanding occupations), focusing on better understanding the relationship between fatigue, recovery (most notably sleep), injury and training load. Hugh has applied experience working with collegiate and professional athletes in Europe and North America, where he has previously worked for the Oakland Raiders (NFL), the University of Oregon (NCAA American Football) and during his doctoral studies at a FIFA Medical Centre of Excellence and German Olympic Training Centre (University of Saarland, Germany). //// Dr. Hugh Fullagar hefur tekið til starfa sem prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hann kemur til HR frá University of Technology í Sydney. Hugh er reynslumikill kennari og vísindamaður, ásamt því að vera eftirsóttur fyrirlesari í faginu. Rannsóknarefni hans hafa snúist um að þróa gagnreyndar aðferðir til að bæta frammistöðu og minnka áhættu á meiðslum. Einkum hefur hann skoðað samhengi þreytu, endurheimtar, svefns, meiðsla og þjálfunarálags. Hugh lauk doktorsprófi í íþróttafræðum við Saarland University í Saarbrücken í Þýskalandi árið 2017 og kláraði grunnnám og meistaragráðu í Ástralíu fjórum árum fyrr. Hugh hefur meðal annars starfað sem íþróttafræðingur við University of Oregon og hjá Oregon Ducks í bandarísku NCAA-háskóladeildinni, sem styrktar- og þrekþjálfari hjá Oakland Raiders í NFL-deildinni, við FIFA-læknastöðina og Ólympíumiðstöð í Þýskalandi og er nú í samstarfi við NBA Global Academy. Hugh starfaði einnig um skamma hríð hjá AZ Alkmaar FC í Hollandi. Enn fremur hefur Hugh hann víðtæka reynslu af ráðgjöf og rannsóknum með fagaðilum eins og slökkviliðsmönnum og sérsveitum. ru.is/frettir/dr-hug…
English
0
0
3
434
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
"Gervigreind á mannamáli" er hlaðvarpssyrpa þar sem við spjöllum við starfsfólk Háskólans í Reykjavík um gervigreind út frá ýmsum hliðum. Við veltum fyrir okkur kostum og mögulegum göllum gervigreindar og hagnýtingu hennar í daglegu lífi. Í þessum þætti ræðir María Ólafsdóttir hjá samskiptateymi HR við Stefán Ólafsson, lektor við tölvunarfræðideild og rannsakanda við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík. Sérsvið Stefáns er máltækni en hann er með doktorsgráðu í heilbrigðisupplýsingatækni, meistaragráðu í máltækni og BA-gráðu í enskum og kínverskum fræðum. SPOTIFY open.spotify.com/episode/0XH1zg…
IS
0
0
1
230
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
"Er virkilega nauðsynlegt að kostnaðarframúrkeyrsla líkist náttúrulögmáli við opinberar framkvæmdir? Hvernig snéru Norðmenn dæminu um kostnaðarframúrkeyrslu við? Hvað hefur Bent Flyvbjerg til málanna að leggja?" Þetta eru þrjú dæmi um spurningar, sem stjórnendur Verkfræðivarpsins á Spotify leita svara við að þessu sinni. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og @thordurv, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli. HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir @SkuliAndresson og @Siggeirsson. SPOTIFY open.spotify.com/episode/09SjUa…
IS
0
0
0
265
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Árlegur hápunktur Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins, var Bleiki dagurinn, sem haldinn var hátíðlegur um land allt föstudaginn 20. október. Starfsfólk og nemendur HR tóku þátt. ///// The highlight of Pink Ribbon (Bleika slaufan), the awareness and fundraising campaign of the Icelandic Cancer Society, is the annual Pink Day, celebrated across the country on October 20th. Staff and students of RU participated. #bleikaslaufan #bleikidagurinn #pinkribbon #pinkday
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet mediaHáskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet media
IS
0
0
1
206
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Það Grétar Sveinn Theodórsson kennir námskeiðið Almannatengsl og samskipti hjá Opna háskólanum í HR. Grétar er með meistaragráðu í almannatengslum og markaðssamskiptum frá Curtin Business School í Perth í Ástralíu og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur rúmlega sextán ára reynslu sem ráðgjafi í almannatengslum og samskiptum. Þar af starfaði hann í rúm sjö ár sem ráðgjafi hjá bandarísku almannatengslafyrirtæki með starfsstöð í Amsterdam og á Íslandi. Grétar hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, íslensk og erlend, allt frá litlum sprotafyrirtækjum upp í nokkur af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Hann er reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum þegar rædd eru mál sem tengjast almannatengslum. Grétar hefur áður kennt námskeið um almannatengsl við Háskóla Íslands og við Háskólann á Bifröst. Hann er sömuleiðis einn af aðstandendum hlaðvarpsþáttanna @hismid_hladvarp. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér: oh.ru.is/namskeid/alman…
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University tweet media
IS
0
0
0
342
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Gestur Íþróttarabbs HR að þessu sinni er @chrishphd. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent-háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C aðferðafræðina sem er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræðilega færniþjálfun. Hún byggir á kenningum um jákvæða og heildræna hæfileikamótun. Það er Daði Rafnsson sem stýrir Íþróttarabbi HR að þessu sinni og ræðir við Chris. Daði er doktorsnemi við sálfræðideild HR og stundakennari í íþróttafræðideild. Eftir Chris liggja yfir 160 fræðigreinar, bókakaflar og bækur. Hann situr í ritstjórn margra virtra fræðirita og hefur verið virkur þátttakandi í fjölþjóðlegu samstarfi, þar á meðal Erasmus-verkefni sem hann hefur undanfarið unnið með HR, ÍSÍ og UMFÍ um sálfræðilega færniþjálfun unglinga. open.spotify.com/episode/375sfN…
IS
0
0
1
180
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Er heimurinn að verða VUCA? Afhverju er áhættustjórnun að verða ein mikilvægasta greinin innan hugmyndafræði stjórnunar? VUCA er skammstöfun sem lýsir heimi sem er hverfull (volatile), óviss (uncertain), flókinn (complex) og margræður (ambiguous). Margt bendir til að heimurinn okkar verði meira “VUCA” með hverju árinu. Loftslagsbreytingar, óvissa í stjórnmálum, alþjóðavæðing viðskipta og fyrirsjáanleg tæknibylting eru örfá dæmi um þróun sem ýtir undir óvissu og áhættu. Mat á áhættu er þannig hugsanlega mikilvægasta einstaka skrefið við ákvörðunartöku. Í þessum þætti Verkfræðivarpsins verður farið yfir VUCA-heiminn og þær áskoranir sem honum fylgja. Þá verður rætt um mikilvægi áhættustjórnunar en jafnframt bent á að hefðbundar aðferðir eru ekki gallalausar. Hinn frægi Nassim Taleb hefur til dæmis bent á að viðteknar aðferðir fanga ekki þá áhættuþætti sem mestu máli skipta. Þá kallar Taleb “Black Swans” eða svarta svani. Í þættinum verður ennfremur fjallað um “VUCA meter” sem er aðferðafræði sem fræðimenn við verkfræðideild HR þróuðu gagngert til þess að einangra svarta svani við áhættumat. VUCA meter hefur verið notaður með góðum árangri á nokkur stór íslensk verkefni. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli. UM HR HLAÐVARPIÐ HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson. SPOTIFY open.spotify.com/episode/7rk71X…
IS
0
0
1
253
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands leita að sameiginlegum verkefnastjóra til að starfa í 5 mánuði í 30% starfi fyrir Háskóladaginn 2. mars 2024. jobs.50skills.com/ru/is/23632/
IS
0
0
0
249
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Gestir HR hlaðvarpsins að þessu sinni eru Hannes Högni Vilhjálmsson, doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild HR, og Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði og verkefnastjóri Sjálfbærra borga framtíðar. Umræðuefnið er nýtt þverfaglegt diplómanám við HR í umhverfissálfræði og þrívíddartækni. Þeir félagar eru aðstandendur námsins, ásamt Kamillu Rún Jóhannsdóttur, deildarforseta sálfræðideildar og doktor í hugfræði. Það er @StefanHagalin hjá samskiptateymi HR, sem ræðir við Hannes Högna og Pál Jakob. open.spotify.com/episode/20N8eH…
IS
0
1
1
747
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Gestur Sprotasólarinnar er Gísli Ragnar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Ríkiskaupum á sviði opinberrar nýsköpunar. HR og Ríkiskaup gerðu nýverið með sér samstarfssamning sem miðar að því að tengja nemendur í HR við opinbera aðila gegnum ýmis verkefni á vegum Ríkiskaupa. Um miðjan október fer fram Gagnaþon Ríkiskaupa í HR í samstarfi við Reykjavíkurborg og HÍ. Þáttastjórnandi Sprotasólarinnar er María Ólafsdóttir, en syrpan er hluti af fjölskyldu HR hlaðvarpsins. open.spotify.com/episode/5Y77Gm…
IS
0
0
0
217
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavík University
Í 7. þætti Verkfræðivarpsins er sagt frá hvernig að kennsla í verkfræði og fleiri greinum mun taka stakkaskiptum með tilkomu gervigreindar. Vitvélar eins og ChatGPT hafa fært hugmyndaheimi kennslufræðinnar bæði ógnanir og tækifæri. Rætt er um hvernig verkfræðin getur brugðist við til að tryggja að verkfræðingar framtíðarinnar geti tileinkað sér nauðsynlega þekkingu og færni. Meðal þess sem verður kynnt er CDIO-hugmyndafræðin, kennsla með reynsluverkefnum (experiential) og leikjum (gamification). Þá er sjónum beint að HR og staðsetningu skólans í Öskjuhlíð og við Nauthólsvík, sem býður upp á einstæða möguleika til að koma þekkingu til nemenda í gegnum verkefni og leiki. Loks er rætt um ChatLearn-verkefnið, en það snýst meðal annars um að fræðifólk innan HR er nú að þróa spjallmenni (chatbot) til að kenna verkefnastjórnun á háskólastigi. ChatLearn er alþjóðlegt Erasmus+-verkefni þar sem að háskólar frá Finnlandi, Austurríki og Ítalíu eru þátttakendur, auk HR. Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli. HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson. SPOTIFY open.spotify.com/episode/3H41cc… BUZZSPROUT buzzsprout.com/2053371/135840…
IS
0
0
1
272