Aldís Ylfa
1.4K posts


Dúna & Dino eru nýjir þjálfarar hjá Knattspyrnufélagi ÍA 🤝 Dúna Sturlaugsdóttir hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna með áherslu á styrktarþjálfun og þróun yngri kvenna leikmanna hjá félaginu. Dúna hefur mikla reynslu, bæði sem þjálfari og leikmaður. Dúna er með UEFA-B þjálfaragráðu og er íþróttafræðingur með master í íþróttavísindum og þjálfun, sem og heilsuþjálfun og kennslu. Ásamt þjálfuninni starfar Dúna sem verkefnastjóri Farsæls Frístundastarfs hjá Akraneskaupstað. Dúna á 94 leiki fyrir ÍA sem leikmaður, skoraði í þeim 24 mörk og var um tíma fyrirliði liðsins. Dúna hefur áður starfað sem styrktarþjálfari hjá sænska knattspyrnuliðinu Kristianstad sem og íslenska kvennalandsliðinu í Knattspyrnu. „Það er góð tilfinning að vera komin aftur til baka í uppeldisfélagið. Hér ólst ég upp og á dásamlegar minningar, og er spennt fyrir því að taka þátt í því góða starfi sem er að eiga sér stað hjá kvennaflokkum KFÍA“. Dino Hodzic hefur hefur verið ráðinn markmannsþjálfari félagsins. Dino Hodzic mun bæði sjá um markmenn beggja meistaraflokka félagsins sem og markmenn yngri flokka. Dino er orðinn Skagamönnum vel kunnugur en hann hefur leikið fyrir meistaraflokk félagsins frá árinu 2019. Dino hefur á sínum leikmannaferli spilað fyrir bæði Vejle og Frederica í Danmörku. Hann hefur einnig komið að þjálfun yngri flokka ÍA undanfarin ár. Dino hefur á sínum ferli unnið með þekktum markmannsþjálfurum í greininni og er þessa stundina að sækja menntun KSÍ í þjálfun markmanna. „Ég er þakklátur fyrir það tækifæri sem mér hefur verið gefið hjá félaginu. Ég hef notið þess að vera hluti af samfélaginu á Akranesi frá því ég kom hingað fyrst og hér líður mér og fjölskyldu minni mjög vel. Ég hlakka til að vinna með þeim fjölmörgu góðu & efnilegu markvörðum innan félagsins á komandi árum“. Við erum gríðarlega ánægð með að hafa fengið jafn reynslumikla þjálfara inn í þjálfarareymið okkar. Á sama tíma þökkum við þeim Aldísi Ylfu Heimisdóttur & Þorsteini Magnússyni fyrir góð störf fyrir félagið og óskum við þeim góðs gengis í komandi verkefnum. Aldís Ylfa hefur þegar lokið störfum hjá félaginu en Þorsteinn klárar síðustu leiki tímabilsins hjá meistaraflokki karla. #fótbolti #kfía


Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril með ÍA 💛 Sín fyrstu skref með meistaraflokk með steig hún árið 2009, aðeins 15 ára gömul. Hún hefur tekið þátt í samtals 14 tímabilum og aðeins misst af einu heilu tímabili þrátt fyrir að vera tveggja barna móðir 💕 Unnur er búinn að vera einn af lykilmönnum liðsins og mikilvægur karakter, bæði innan vallar sem utan 👌 Hún hefur spilað 246 leiki fyrir félagið í meistaraflokki og skorað í þeim 96 mörk ⚽ Unnur, takk kærlega fyrir þitt framlag til félagsins, þín verður sárt saknað af æfingum en við vonumst til þess að sjá þig í kring um félagið í framtíðinni 🙏 #kfía #fótbolti






Bryndís Rún Þórólfsdóttir hefur framlengt samning sinn út tímabilið 2025. ✍️ Bryndís er sterkur miðjumaður sem hefur verið liðinu virkilega mikilvæg í gegnum árin og leitt það áfram sem fyrirliði undanfarin ár. Í sumar fór hún yfir 200 spilaða leiki fyrir félagið. ⚽ Bryndís sýndi mikinn styrk í sumar og var í lykilhlutverki við að koma liðinu upp í Lengjudeildina þar sem hún kemur til með að fylgja því í hörkubaráttu á næsta ári. 👊 Það eru frábærar fréttir að okkar sterki fyrirliði komi til með að leiða liðið áfram! 🖤💛🖤

Steinar Þorsteinsson hefur framlengt út tímabilið 2026! ✍️ Steinar hefur verið lykilmaður í liði ÍA undanfarin ár og er það okkur sönn ánægja að tilkynna um framlengingu á samningi við hann. Steinar er leikjahæsti spilandi Skagamaður hjá ÍA með skráða 264 leiki og 58 mörk fyrir félagið. ⚽ asigurslod.is/leikmenn-nuver… Áfram ÍA! 🖤💛🖤 #kfía #fótbolti

Álftanes - ÍA klukkan 18:00 á föstudaginn ⚽ Síðasti leikur tímabilsins og sigur tryggir okkur upp um deild 👌 Fjölmennum á völlinn og hjálpum stelpunum okkar á lokametrum deildarinnar 👏 Frí rúta á leikinn, skráning fer fram á Stubb: 👉 stubb.is/events/n5qEPn 👈 Brottför 16:50 frá Jaðarsbökkum 💛 Engin stúka á staðnum og mælum með að taka með sér útilegustóla 😊 Áfram ÍA 💛🖤💛 #fótbolti #kfía

Stelpurnar unnu gríðarlega mikilvægan sigur í gær á móti ÍH 💪 Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik en ÍA gerði sér lítið fyrir og vann sannfærandi 1 - 6 sigur á útivelli 👏 Með sigrinum fór liðið upp í annað sæti deildarinnar 👍 Mörk ÍA skoruðu: Erla Karitas Jóhannesdóttir ⚽⚽ Erna Björt Elíasdóttir ⚽ Unnur Ýr Haraldsdóttir ⚽ Samira Suleman ⚽⚽ Áfram ÍA 💛🖤💛 #fótbolti #kfía ksi.is/mot/leikskyrsl…




Þriðja markið gegn Völsungi




