Arnar Þór Jónsson

71 posts

Arnar Þór Jónsson banner
Arnar Þór Jónsson

Arnar Þór Jónsson

@ArnarrThor

Truth seeker. Liberal conservative. Socratic Gadfly.

Iceland Katılım Şubat 2022
38 Takip Edilen124 Takipçiler
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Menn geta haft mismunandi skoðanir á yfirtöku skuggadómaranna (VAR: Video Assistant Referee) í fótboltanum, en mín skoðun er sú að þetta sé að eyðileggja íþróttina. Á vellinum lítur allt út fyrir að vera hefðbundið: Dómarinn er enn inná í sínum svarta búningi og notar flautuna á allt sem telja má hefðbundið, en ábyrgðin á meiriháttar ákvörðunum hefur verið flutt yfir á skuggastjórnendur sem sitja við tölvuskjái og taka stóru ákvarðanirnar með aðstoð myndavéla. Vandinn er sá að skuggastjórn sérfræðinga í fótbolta býður heim spillingu, rétt eins og í stjórnmálum og víðar. EF skuggastjórnendur geta ákveðið fyrirfram að annað liðið skuli njóta vafans, þá eru úrslitin í raun ráðin. Áhorfendur á vellinum / við sjónvarpið sjá ekki þrýstinginn / peningana / hagsmunatengslin sem kunna að búa að baki slíkum ákvörðuum. Þegar fjárhagslegir hagsmunir blandast inn í málið er fjandinn laus, því þá fá óprúttnir menn tilefni og tækifæri til að kaupa sig til áhrifa. Um helgina fengu Norðmenn að kenna á þessu þegar ólöglegt jöfnunarmark Englands fékk að standa. Mbl lýsir þessu með eftirfarandi orðum: "Í markinu virtist Orjan Nyland, markvörður Noregs, sparka boltanum í vír sem heldur myndavél á lofti og boltinn datt því beint niður á Elliot Anderson, leikmann Englands. Í kjölfarið sóttu Englendingar og endaði sóknin með marki frá Jude Bellingham. Atvikið var til umræðu í HM-stofunni á RÚV eftir leikinn. „Ég held að þetta fari klárlega í vírinn en það er svo furðulegt að það er enginn leikmaður sem kvartar neitt,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari. Í yfirlýsingu frá FIFA kom fram að skynjarinn í boltanum hefði ekki mælt snertingu og var því ekki hægt að sanna að boltinn hefði snert vírinn. Markið var því látið standa." Vítin eru til að varast þau og Íslendingar hafa tækifæri 29.8. nk. til að hafna stjórn sérfræðinga sem sitja við fjarlæga tölvuskjái og vilja fá að taka ákvarðanir sem varða mikilvægustu hagsmuni Íslands í nútíð og framtíð, semja lögin og túlka lagareglurnar sem gilda myndu á Íslandi. Nei, takk. Alveg eins og í fótboltanum, þá er gott að vita hver það er sem tekur ákvarðanirnar, því slíka menn er hægt að þekkja og losna við. Dómarar sem sýna og sanna að þeir eru óhæfir fá ekki að dæma fleiri leiki. Óhæfa stjórnmálamenn má losna við með því að kjósa þá ekki. Óhæfa skuggastjórnendur er erfiðara (ómögulegt?) að losna við. Þess vegna ber öllum lýðræðisvinum - sem styðja gagnsætt stjórnarfar og vilja að valdhafar svari til ábyrgðar - að segja skýrt NEI 29.8. nk.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
1
1
20
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Öll vitum við - eða megum vita - að heiðarlegt fólk þrífst ekki vel á vettvangi stjórnmálanna, þar sem blekkingar, óheilindi, sviksemi og rýtingsstungur í bakið eru gjaldmiðill "velgengni". Á sunnudagsmorgni, í kjölfar þess að einn af heiðarlegustu stjórnmálamönnum Bretlands, Ann Widdencombe, hefur fundist myrt á heimili sínu, er ástæða til að ígrunda hvort heimur stjórnmálanna sé enn myrkari en við viljum almennt viðurkenna. Fyrir þá sem enn ímynda sér að stjórnmálin séu heilbrigður vettvangur, þar sem bestu menn og konur hverrar þjóðar starfa af heilindum í þágu kjósenda sinna samkvæmt bestu samvisku, þá eru hér nokkur púsl sem lesendur mega raða saman í hugsa sínum í dag, eftir bestu getu: 1. Ann Widdencombe hafði gagnrýnt harkalega hvernig valferli stjórnmálaflokka miðast orðið við útlit / umbúðir en ekki hæfni / innihald, sjá t.d. hér og hvernig tilfinningasemi er notuð til að kæfa heilbrigða umræðu, sjá hér. 2. Eins og Liz Truss, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, hafði Widdencombe talað opinskátt um hulda hönd djúpríkisins / kerfisins og dulin en skýr áhrif þess á stefnumörkun á sviði stjórnmálanna og hverjum leyfist að sitja í valdastólum sem handbendi þessara huldu afla. 3. Hér á Íslandi hafa menn viljað vera í afneitun um tilvist slíkra hulduafla, en sá sem þetta ritar er ekki í slíkri afneitun, sbr. þetta viðtal hér frá árinu 2024 þar sem settur var fram "spontant" spádómur sem rættist nokkrum dögum síðar þegar fyrrum forsætisráðherra var ráðin til WHO, sem hún hafði lagt sig fram um að þjóna vel í ráðherratíð sinni. 4. Vilji menn freista þess að leggja saman tvo og tvo um tengsl stjórnmála, hagsmunagæslu og gagnkvæma aðstoð þar á milli, þá geta menn dundað sér við það í dag að skoða hvert fyrrum stjórnmálamenn leita um atvinnu þegar pólitískum ferli þeirra lýkur. Getur verið að þeir leiti til þeirra sem þeir telja að eigi þeim einhverja greiða að gjalda? Er tilviljun að fyrrum fjármálaráðherra er kominn til Samtaka atvinnulífsins? Er tilviljun að fyrrum utanríkisráðherra fékk starf hjá Evrópuráðinu? Varla meiri tilviljun en að fyrrum forsætisráðherra leitaði til WHO um vinnu - og fékk. Hvaða sögu segir þetta okkur um íslenska pólitík? 5. Hvaða sögu segir það okkur um núverandi forsætisráðherra að hún gangi á bak orða sem hún lét falla í aðdraganda síðustu kosninga um það að brýnast væri að taka til hér innanlands og að ESB umræða væri ótímabær? Hvaða sögu segir það um útpælda blekkingu að nota orðin "bannað að plata" til að plata sig inn á kjósendur? Hvaða áhrif gæti aðild hennar að World Economic Forum haft á háttsemi hennar í embætti? Gæti það hafa leitt til þess að hún líti jafn smáum augum á Alþingi og Keir Starmer, vinur hennar (og WEF félagi), lítur á breska þingið í samanburði við Davos? Ályktun: Þeir sem vilja klífa valdastiga stjórnmálaflokkanna þurfa að vera góðir og þægir já-menn, gera (og segja) það sem þeim er sagt, þjóna þeim sem eiga peningana og fara með hin raunverulegu völd. Þeir sem ekki eru meðfærilegir eru hraktir á brott, sviptir völdum og myrtir ef nauðsyn krefur. Góðar stundir. [Virkir hlekkir á bloggi AÞJ]
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
2
4
20
369
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
@HansJnssonuk1 Þetta er að snúast. Venjulegt fólk er að vakna af Þyrnirósarsvefninum. Eftir 2-3 ár verður fólk hætt að láta bjóða sér vitleysu.
IS
2
0
3
65
Truth Hunter
Truth Hunter@HansJnssonuk1·
@ArnarrThor Í alvöru? Við erum með forseta sem er upp á punt að prjóna trúlausan biskup og transfána sem þjóðareinkenni. Þetta er fáni blætis eða kynhegðunar. Hvað á það við börn? Við erum orðin að athlægi erlendis. Börn + kynblæti = Norm?
IS
1
0
5
68
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Þegar ég horfði á fréttaviðtalið við lögreglukonuna við kirkjutröppurnar sem boðaði umfangsmikla lögreglurannsókn til að finna glæpamenn með málningarrúllur, þá vissi ég ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta, því alvarleikinn í svip lögreglukonunnar var í svo miklu ósamræmi við kómíkína í þessu. Lögregluhúfan virtist vera of stór og lögreglujakkinn líka, eins og þetta væri hluti af atriði úr áramótaskaupinu ... en kannski stöfuðu þessi hughrif bara af því sem nú er verið að upplýsa, þ.e. að lögreglan kaupir búningana sína á Ali Express!? Hvað sem því líður, þá gerði ég mér grein fyrir að lögreglukonunni fannst þetta alls ekkert fyndið, ekki frekar en þeim sem hamra nú lyklaborðið í bræði og krefjast þess að réttarvörslukerfið komi böndum á málarana. Eftir alla þessa dramatík er erfitt að verjast þeirri hugsun að Íslandi sé nú stjórnað af fólki veldur ekki hlutverki sínu, passar ekki í búninginn sinn og eru að fara á taugum gagnvart eigin vanhæfni. Mögulega gæti þetta skýrt það hvernig íslenskir ráðamenn éta upp alla vitleysu sem kemur upp úr erlendum kollegum þeirra á Prúðuleikarafundum v/Nato og víðar. Dæmi: Forsætisráðherra Íslands hefur trúlega aldrei haldið á byssu fyrr en Erdogan gaf henni eina slíka nú í vikunni. Það stöðvar þó ekki hana, fremur en aðra kvenráðherra, í því að styðja stríðsrekstur og vopnakaup í nafni Íslands, á sama tíma og hún vinnur með samráðherrum sínum að því að framselja vald ríkisstjórnar sinnar til Brussel. Á þessum grunni má freista þess að setja fram óvísindalega tilgátu: Þegar vanhæfnin er orðin of mikil - og of augljós - má búast við að menn grípi fegins hendi tækifæri til að belgja sig út yfir fólki með málningarrúllur eða yfir því að hitta frægðarmenni á Nató-fundum. Ályktun: Verkefni almennings, sem borgar laun þessara leikara, er að missa ekki fókusinn og minna leikarana á að hlutverk þeirra er að vinna gegn glæpastarfsemi innanlands og gæta þess í utanríkismálum að Íslendingar missi ekki sjálfsákvörðunarrétt sinn og sjálfsforræði inn í erlend skrifstofubákn og flökunarvélar vígbúnaðarframleiðenda.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
3
5
73
1.3K
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Fyrir mörgum árum var ég staddur í erlendri borg með konunni minni. Við vorum rétt um tvítugt og kunnum ekkert á almenningssamgöngur borgarinnar, en ég var samt góður með mig og taldi mig hafa hlutina alveg á hreinu. Þetta yfirlæti bráði af mér þegar við áttuðum okkur á því að við vorum á hraðleið inn í alræmt glæpahverfi, þar sem evrópskir túristar höfðu, samkvæmt nýlegum fréttum, verið barðir og rændir. Þessi óráðlega ferð okkar unga parsins var að lokum stöðvuð af eldri konu, sem hvíslaði að okkur að fara út á næstu stöð og snúa snarlega til baka. Sem við og gerðum. Þetta rifjast upp núna, þegar daglegur fréttaflutningur færir fleiri vísbendingar um það að ríkisstjórn Íslands hafi valið fyrir okkur vegferð sem vitað er að endar á stað þar sem ríkar, litlar þjóðir eru krafðar um fjármuni sína og auðlindir, auk þess sem þær þurfa að sverja erlendum valdhöfum hollustueið. Morgunblaðið stafar það ofan í lesendur í dag að fiskveiðistefna ESB sé ófrávíkjanleg og að ný aðildarríki þurfi að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu þess. Þetta vissum við - eða máttum vita, rétt eins og villtir túristar í erlendri stórborg vita - eða mega vita - þegar skemmtiferðin er orðin að hættuför. Getur ekki einhver eldri borgari, einhver ábyrgur einstaklingur með vit og reynslu, staðið upp og talað við óvitana sem völdu þessa Brussel-rútu? Þegar ég hugsa um fyrrnefnda borg finn ég alltaf til þakklætis til áðurnefndrar konu, sem axlaði borgaralega ábyrgð. Ráðherrar í núverandi ríkisstjórn munu, með sama hætti, síðar verða þakklátir þeim sem forða þeim frá eigin fyrirhyggjuleysi.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
1
28
871
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Hljóðlátar hamfarir eru að eiga sér stað: Testósterón í körlum hefur lækkað um 50% á 50 árum. Guardian og Mbl benda á offitu sem rót vandans, en horfa fram hjá stóraukinni lyfjanotkun og óheilbrigðum lífsstíl margra nútímamanna (kyrrseta, óhollt mataræði, stress, skjátími, svefnleysi) sem fá ekki nægilegt sólarljós (og vantar D-vítamín); innbyrða of mikið af Omega 6 (en vantar Omega 3 og 9). Og þegar við þetta bætist "ókeypis", þvinguð, alþjóðleg sprautuherferð sem m.a. orsakaði útbreitt tíða-vandamál hjá konum og alls konar vanda varðandi mjúkvefi mannslíkamans, þá er ekki óeðlilegt þótt þetta sé allt skoðað í heild. Í þessu samhengi vekur sérstaka eftirtekt að Bourla, núverandi forstjóri eins stærsta lyfjaframleiðandans, var áður yfirmaður dýralyfjadeildar þar, sem framleiddi bóluefni fyrir svín sem gerðu þau ófrjó (sjá mynd). En um fíla af þeirri stærðargráðu tala fjölmiðlar ekki, því þeir vita að maður nefnir ekki snöru í hengds manns húsi.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
2
14
247
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Ólafur Ragnar Grímsson hélt tímamótaræðu á stofnfundi Áfram Ísland í gær. Ræða hans var ekki flokkspólitísk. Þetta var ræða um lýðveldið okkar. ÓRG var mættur á fundinn því honum er ekki sama um lýðveldið. Honum er ekki sama um áratuga baráttu fyrir útfærslu landhelginnar. Honum er ekki sama um þann mikla árangur sem kynslóðirnar hafa náð í þessu landi frá fullveldisstofnun: Uppbygging vega, hafna, brúa, umbætur í samgöngum, bygging sjúkrahúsa, skóla o.s.frv. Íslendingar áttu danskan konung þegar ÓRG fæddist. Íslendingar eru nú í fremstu röð þjóða. ÓRG er heimsborgari. Hann hefur farið víða og starfað víða, kynnst æðstu mönnum stærstu og smæstu þjóða. Hann sér stórkostlegan árangur Íslendinga. Hann bendir á að Ísland er, ásamt Noregi og Sviss, meðal þriggja af fimm ríkustu þjóða heims. Hvers vegna þá að fara í þessa vegferð til Brussel í stað þess að halda áfram á þeirri árangursbraut sem vegferðin hefur skilað okkur? Hvers vegna á að taka U-beygju nú og reyna að sannfæra Íslendinga um að okkur sé best borgið með að afhenda erlendum mönnum stóran hluta af löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvaldi okkar? ÓRG minnir á að lobbýistar og embættismenn í Brussel bera ekki stöðu Íslands sérstaklega fyrir brjósti. ÓRG undrast asann sem einkennir málið. Af hverju að "klára þetta fyrir haustið"? ÓRG bendir á að við hefðum þurft upplýsta, djúpa umræðu. Engin af næstu nágrannaþjóðum okkar hefur séð hagsmuni sína í því að ganga í ESB. Af hverju eru norrænu þjóðirnar ekki með Evru, nema Finnar? ÓRG bendir á tölfræði um atvinnuleysi ungs fólks í ESB, sem er svimandi hátt (25% í Finnlandi, Spáni og víðar). Svíar og Danir felldu í þjóðaratkvæði að taka upp Evru. Ekki hefur það orðið þeim til tjóns. Hagfræðilega er það villukenning að evran muni færa okkur gull og græna skóga. Við viljum ekki villukenningar heldur staðreyndir. Hvað er það sem við þurfum að sjá? ESB er þekkt stærð. Hver og einn getur kynnt sér hvað í því felst að ganga í ESB og afhenda dómstól ESB æðsta dómsvald á Íslandi og hafa lagalegt gildi umfram samþykktir Alþingis. Ef menn trúa því í alvöru að þetta sé "könnunarleiðangur" þá minnir ÓRG á að Jóhanna og Steingrímur reyndu ekki að fela það að þau vildu ganga í ESB. Ef ferlinu verður ýtt af stað, þá er það byggt á umsókn Jóhönnu og Steingríms, og Ísland þar með í stöðu umsóknarríkis. Fáum við undanþágur? Mitterand sagði: "Samningur getur ekki verið eintómar undanþágur." Uffe Elleman Jensen, utanríkisráðherra Dana og harður ESB sinni, sagði að ef Íslendingar vildu ekki ganga í ESB "eins og það er" þá skyldum við "gleyma þessu". ÓRG bendir á heimasíðu Viðreisnar, þar sem finna má ræðu heiðursgests á síðasta landsfundi Viðreisnar, Hofstad, sem hylltur var með standandi lófaklappi þar fyrir að segja m.a. að ekki eigi að vera að ræða um undanþágur fyrir Ísland, heldur ganga inn til að byggja upp "nýtt heimsveldi" (e. new empire). ÓRG minnir á að undanþágur eru aðeins um smotterí: Danir fengu undanþágur fyrir sumarbústaði. Finnar fengu undanþágu vegna "heimskautalandbúnaðar" sem felur í sér að ríkissjóður Finnlands má leggja sérstakan skatt á Finna til að styrkja þarlenda bændur. ESB er þekkt stærð: Þing, dómstóll, kommission, 30 þúsund lobbýistar, 40.000 skrifstofumenn. En fáum við ekki sæti við borðið? Björn Malmkvist tók viðtöl við 2 þingmenn (af rúmlega 700) á þingi ESB og fékk að heyra að þingfulltrúar starfi þar með "flokkahópum" og að okkar 6 fulltrúar myndu sitja í slíkum hópum. ÓRG bendir á að fréttastofa RÚV hafi klippt út búta úr viðtali Björns Malmkvist, sem hentuðu ekki "narratífinu". Klippt var út frásögn um það að atkvæði ráðherra í ráðherraráðinu vegi mismikið og Þýskaland og Frakklandi hafi þar ríflega 30% atkvæðamagnsins en fulltrúi Íslands í ráðherraráðinu hefði 0,1% vægi! Þetta klippti RÚV út úr viðtali Björns Malmkvist. Þetta eru staðreyndirnar, valdhlutföllin og veruleikinn sem verið er að biðja okkur að ganga inn í. En þetta kostar okkur ekkert er það? Í ræðu sinni á fundinum í gær benti Björn Zoega á fórnarkostnað viðræðnanna: Allan þann tíma sem þær standa gerir embættiskerfið á Íslandi ekki annað en að glíma við kerfið þarna úti. Landsstjórnin verður upptekin við glímuna við Brussel. ÓRG rifjar upp hvað viðræðurnar kostuðu íslenska stjórnkerfið í tíð Jóhönnu og Steingríms. ÓRG bendir á að fríverslunarsamningar við önnur ríki, m.a. Bandaríkin og Kína, muni falla niður. Fórnarkostnaðurinn er fjórþættur: Embættismannakerfið, pólitíska forystan í landsmálum, fríverslunarsamningar, íslensk fyrirtæki muni ekki geta sótt fram á öðrum mörkuðum því viðsemjendur þar muni ekki vilja tala við þau fyrr en fyrir liggur hvort við förum inn í reglufargan ESB eða ekki. Lýðræði og stjórnarskrá eru ekki innantóm orð, heldur það sem gerir okkur kleift að hafa valdið í okkar eigin höndum. Aðild að ESB myndi taka valdataumana úr okkar höndum, dómsvaldið, framkvæmdavaldið að hluta og löggjafarvaldið að hluta, í skiptum fyrir pínulítinn stól í Brussel: Enginn Íslendingur getur breytt stofnsáttmálum ESB. Málskotsrétturinn skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar er dýrmætur. Fari Íslendingar inn í ESB mun þessi mikilvægi réttur vera tekinn úr sambandi: Enginn málskotsréttur stöðvar reglugerðir og tilskipanir ESB. Æðsta stjórn ESB er ekki valin á lýðræðislegan hátt. Úrsúla von der Leyen var valin af kanslara Þýskalands og forseta Frakklands einum. Úrsúla valdi ein Kaju Kallas sem utanríkismálastjóra ESB. Íslenskt lýðræði er þess virði að berjast fyrir. Íslenskt sjálfstæði er þess virði. Lýðveldið er þess virði. Viljum við Áfram Ísland eða ætlum að við að taka U-beygju? Ólafur Ragnar Grímsson hefur talað.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
1
10
50
1.6K
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Heiðríkjan sem birtist í textum Alþingishátíðarinnar 1930 hreinsar huga lesandans af hugsanavillum síðari tíma. Árið 1930 voru flestir Íslendingar vissulega fátækir á nútímamælikvarða, en þeir voru sjálfsbjarga og vinnufúsir: Allir sem vettlingi gátu valdið fengu að vinna, því það þótti auðmýkjandi að þurfa að þiggja ölmusu. Engum datt í hug að breyta mætt konum í karla og körlum í konur með langvarandi hormónameðferðum. Engum datt í hug að hann væri hundur eða köttur. Ef einhver hefði lagt til að Íslendingar greiddu milljarða í botnlausa erlenda sjóði án þess að vita í hvað peningarnir yrðu notaðir, hefði sá hinn sami verið rekinn úr ræðustólnum "með það sama". Enginn hefði komist upp með að leggja til að Íslendingar keyptu sprengjur í nafni friðar til að drepa fólk í útlöndum. Engum datt í hug að búið yrði til rándýrt menntakerfi sem þar sem börn gætu verið 10 ár í skóla án þess að læra að lesa sér til gagns. Engum datt heldur í hug að búið yrði til heilbrigðiskerfi, fjármagnað úr vösum vinnandi Íslendinga, sem greiddi tannviðgerðir og allan annan kostnað aðkomumanna sem kynnu að hagnýta sér "samtrygginguna".   Allir ræðumenn ársins 1930 virðast hafa haft þá skýru hugmynd um stjórnkerfið að það ætti að þjóna Íslendingum, en áttuðu sig ekki á því að þetta sama "kerfi" myndi þróast yfir í að fara að þjóna sjálfu sér og svo, á lokastigi stjórnarfarslegrar hnignunar, að fara að þjóna fólkinu sem starfar innan kerfisins. Enginn hefði mátt til þess hugsa að þegar réttlætingarástæður fyrir tilvist "kerfisins" rekast á persónulega hagsmuni fólksins sem starfar í kerfinu, þá þyrfti hið fyrrnefnda að víkja. Ef menn vilja fá staðfestingu á síðastnefndri kenningu, þá er Guðmundar- og Geirfinnsmálið sennilega eitt sorglegasta dæmið. P.S. Á sama tíma og Íslendingar kaupa sprengjur til að láta rigna yfir fólk sem við þekkjum ekki haus né sporð á, þá lét þessi írska hjúkrunarkona sannleiksbombum rigna í beinni útsendingu í írska ríkissjónvarpinu í vikunni. Sjón er sögu ríkari. [Sjá hlekk á bloggi AÞJ]
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
4
19
260
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Í gærkvöldi datt upp í hendurnar á mér bók um Alþingishátíðina 1930. Samanburðurinn við nútímann hélt fyrir mér vöku í nótt, því efnið framkallaði einhvers konar menningarsjokk. Hér á eftir fara örfá dæmi af handahófi: 1930, Ásgeir Ásgeirsson, forseti sameinaðs þings: "Þingvellir varðveita svip hinna fornu laga, sem voru stuttorð og gagnorð, meitluð eins og klettarnir í gjánni af skapferli bóndans og víkingsins, í huga lögsögumannsins, hinni fyrstu lifandi lögbók hins unga lýðveldis." 2026, ríkisstjórn Íslands: "Kíkjum í pakkann" (sem er meira en 10 hillumetrar að þykkt með ca. 150 þúsund þéttskrifuðum blaðsíðum af erlendum lagatexta sem Íslendingar þyrftu að taka upp í aðlögunarviðræðum sem klæddar yrðu í búning aðildarviðræðna). 1930, Davíð Stefánsson (úr Hátíðarljóði): "Íslendingar, þér sem erfðuð landið, vinnið heilög heit, takið höndum saman! Munið, að sá staður, sem þér standið á, er vafinn véböndum, vígður guði." 2026, þingmenn ríkisstjórnarflokkanna: "Við eigum að ganga í ESB því kaffibolli og pizza eru ódýrari þar." 1930, Davíð Stefánsson: "Vakið! Vakið! Tímans kröfur kalla, knýja dyr og hrópa á alla. Þjóð, sem bæði Þór og Kristi unni, þjóð, sem bergt hefur af Mímisbrunni, þjóð, sem þyngstu raunir hefur lifað, þjóð, sem dýpstu speki hefur skrifað - hún er kjörin til að vera að verki, vinna undir lífsins merki." 2026, ráðherra í ríkisstjórn Íslands: "Með hvaða liði heldurðu á heimsmeistaramótinu í fótbolta?" 1930, Davíð Stefánsson: "Brennið þið, vitar! Hetjur styrkar standa við stýrisvöl, en nótt til beggja handa." 2026, ráðherra í ríkisstjórn: Á hröðum flótta undan rökræðu um eigin áherslumál.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
3
37
628
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Ekki nokkur maður gæti hugsað sér að borða heila Salami pylsu í hádegismat. Þess vegna þarf að sneiða hana í örþunnar sneiðar. Það kunna Já-menn vel. Já-menn mega eiga það að þeir eru vel fjármagnaðir, vel skipulagðir, kunna að setja upp (falskt) bros og tala blíðlega með tveimur tungum. Já-menn gæta þess að ásýndin sé blíðleg, en blíðuhótin eru köld og málefnafátæktin sífellt meira áberandi. Þegar aðaláherslan er lögð á að fá að "kíkja í pakkann" ættu brennd börn að minnast allra innantómu pakkanna sem vondar stjúpur og plast-vinir hafa gefið í gegnum aldirnar. Já-menn vilja ekki að kusk falli á hvítflibbann og nota því gamalkunna aðferð: Að vega að mönnum úr launsátri. Nú þarf enga leiguhermenn. Leigupennar pennar koma að sama gagni. Nýjasti pistillinn á DV um ætlaðan klofning innan Heimssýnar er til þess ætlaður að reyna að veikja ásýnd hinnar þverpólitísku andstöðu við ESB sem Haraldur Ólafsson o.fl. hafa leitt með sóma. Leigupenna DV yfirsést mikilvæg staðreynd: Andspyrnan er ekki einn sameinaður hópur, ekki miðstýrð, ekki launuð, ekki silkihúðuð. Málflutningur hennar er ekki skipulagður af PR mönnum sem leggja áherslu á að allir brosi fölsku brosi. Nei, andspyrnan er sjálfsprottin, beint úr grasrót samfélagsins. Öfugt við gerilsneyddan málflutning Já-manna er andspyrnan lifandi, dýnamísk og sameinar fólk með ófyrirsjáanlegum hætti. Hjarta þess sem þetta ritar fyllist t.d. einlægum kærleika til Sólveigar Önnu Jónsdóttur í hvert sinn sem hún tjáir sig. Og brátt munum við sjá hana sameina krafta sína með Halldóri Benjamín o.fl. Slíka töfra geta engir fjármunir frá Brussel keypt. Enginn leigupenni á DV getur rekið fleyg á milli þessara sameinuðu krafta. Enginn leigupenni getur reynt að halda því fram að hinn einlægi mannvinur og friðarsinni, Haraldur Ólafsson, styðji valdbeitingu af nokkru tagi. Pistillinn í DV er til marks um það að Já-menn eru komnir í rökþrot, því enginn grípur til persónulegra árása á andstæðinginn nema rökin hafi þrotið.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
4
29
495
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Vel má skilja að sölumenn lélegs hótels vilji að hugsanlegir viðsemjendur líti fram hjá þakleka og eldhættu - og einblíni dáleiddir á loforð um "special price for you my friend", því þá gleyma allir að ræða um þá langtímafjárskuldbindingu og frelsisskerðingu sem slíkur samningur fæli í sér.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
2
16
355
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
ESB er með sérstakan "stækkunarstjóra" á launum. Í stækkunardeild ESB starfa um 450 manns, auk starfsfólks í sendiráðum ESB í umsóknarríkjum. Þegar stækkunarstjórinn hittir íslenska ráðherra geta allir séð að það er góðra vina fundur, þar sem allir faðmast og kyssast af óútskýrðri elskusemi. Hver sem fengi það hlutverk að vinna að innlimun Íslands í ESB myndi vafalaust reyna að greina hvar Íslendingar eru veikir fyrir og m.a. komast að þeirri niðurstöðu að Íslendingar eru fremur hrekklausir efnishyggju menn og fremur leslatir. Ef rétt er að farið er auðvelt að fá slíka þjóð til að samþykkja valdatilfærslu til Brussel. Frumforsendan er þó að bíða þess að viljug ríkisstjórn komi til valda hafnar því ekki blákalt að "selja landið" en er tilbúin að ræða um verð fyrir þá sölu. Þegar núverandi forsætisráðherra sagðist myndu selja landið fokdýrt vissi stækkunarstjóragengið að tíminn var kominn. Í kjölfarið fylgdu fundir með utanríkisráðherra þar sem lagt var á ráðin um næstu skref. Niðurstaðan var að kynna til sögunnar sakleysislega þjóðaratkvæðagreiðslu um að "kíkja í pakkann", því allir sannir efnishyggjumenn elska að opna pakka. Snilld þessarar ráðagerðar var í því fólgin að allir í stækkunarteyminu vissu að varla nokkur Íslendingur mun nenna að lesa þá tugi þúsunda blaðsíðna sem aðildarríki ESB þurfa möglunarlaust að lúta. Þetta er skothelt plan fyrir stækkunarstjórann og hennar fólk, í anda aldagamallar hernaðarlistar um að "þekkja óvininn" og nota veikleika hans gegn honum, helst þannig að hann viti ekki að verið er að ráðast á hann. En stækkunarstjórinn og fótgönguliðar hennar í Brussel og íslenska stjórnarráðinu gleymdu einu mikilvægu atriði. Íslendingar kunna að vera leslatir efnishyggjumenn og hrekklausir í þokkabót, en þeir eru ekki kjánar, því flestir Íslendingar hafa fengið uppeldi sem virkjaði meðfædda eðlisgreind þeirra, lifandi taug sem gerir þeim kleift að greina sannleika frá blekkingu. Og þegar blekkingarhulunni er svipt frá mun sá hinn sami aldrei láta blekkjast að nýju. Halldóra Lillý Jóhannsdóttir lögfræðingur er ein þeirra sem sér skýrt hvað býr að baki atkvæðagreiðslunni 29.8. nk. Halldóra bendir á að kjósendum er sagt að atkvæðagreiðslan snúist aðeins um hvort halda eigi áfram viðræðum - og að það sé aðeins afmarkað skref í lengra ferli. "Ef þeim er hins vegar gerð grein fyrir að verið sé að veita stjórnvöldum umboð til formlegs aðildarferlis verður pólitísk og stjórnskipuleg þýðing ákvörðunarinnar skýrari."
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
0
2
28
546
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
RÚV er sívinsælt umræðuefni meðal þess hluta þjóðarinnar sem nálgast útsendingar þaðan með varúð en ekki sem leiðbeiningar. Í gær átti ég samtal við mann sem neyðist til að hlusta á kvöldfréttir oft í viku, meðan hann heimsækir aldraða foreldra sína. Þessi maður er hættur að tala um RÚV og segir þetta ekki vera neitt "Útvarp Reykjavík" lengur, heldur "Útvarp Gaza": Lýsing hans á fréttaprógrammi ríkisfréttastofunnar er svona: 1. Frétt frá Gaza. 2. Frétt um loftslagsbreytingar (allt að brenna). 3. Frétt um ESB (allt í blóma þar). 4. Eitthvað lauflétt í lokin. 5. Gæta þess að heildaráhrif fréttatímans skilji (gamla) fólkið eftir óttaslegið. Ég tek enga ábyrgð á þessari lýsingu, því ég hef forðast fréttatíma RÚV í mörg ár, en það skal þó viðurkennt hér að ég horfi nú nær daglega á sjónvarpsútsendingar RÚV, vegna HM í knattspyrnu. Þar er ekkert til sparað af hálfu ríkisfjölmiðilsins: Einn góður spyrill og 2 reyndir sérfræðingar í "settinu" og jafnvel 2 menn að lýsa sjálfum leiknum. En þar sem leikirnir hafa fæstir verið spennandi hingað til þá "skrolla" ég stundum eins og unglingarnir, með annað augað á símanum. Þar poppa m.a. upp klippur frá RÚV, þar sem Patrekur Jamie tekur að sér að "upplýsa" áhorfendur um ESB með viðtölum við sérvalda sérfræðinga. Þar sem Patrekur veit augljóslega ekkert um málefnið og vissi m.a. ekki að Lichtenstein væri í EES (né að Lichtenstein væri yfirhöfuð til), þá virka viðmælendurnir alvitrir, líkt og verið væri að fá Ancellotti eða Tuchel í "fótboltasettið". Hvað segir þetta okkur um forgangsröðun RÚV? 5 manna sérfræðiteymi er ráðið til að sinna a.m.k. 6 klst útsendingu á dag vegna boltasparks annarra þjóða, sem álls engin áhrif hefur á íslenska hagsmuni, en ræður algjörlega óupplýstan þáttastjórnanda til að fjalla um ESB í aðdraganda mikilvægrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, sem skipt gæti sköpum um framtíð lands og þjóðar. Hér er hugmynd: Hvernig væri að víxla þessu og leyfa bernskum einstaklingum að fræða sig og aðra um hve margir séu inn á fótboltavellinum og um aukaspyrnur, rangstöðu o.s.frv., en ráða 5 manna sérfræðingateymi, með mismunandi sýn og reynslu, til að fjalla um ESB, EES og Ísland í aðdraganda kosninganna 29.8. nk.?
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
2
1
39
1K
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Í kosningunum 29. ágúst nk. þarf þjóðin að svara einni spurningu. En áður en hún gerir það verður hún að svara öðrum. Með því að gangast ESB á hönd væru Íslendingar að afsala lýðræðislegum rétti sínum — og afkomenda sinna — til að kjósa þá sem fara með löggjafarvaldið. Þeir væru að afhenda erlendum stofnunum, sérstaklega framkvæmdastjórn ESB, almennt vald til að semja lög og reglur sem gilda eiga á Íslandi — sem Alþingi Íslendinga mun ekki geta hafnað. Með þessu væri verið að sniðganga lýðræðislegan vilja þjóðarinnar og Alþingi sjálft. • Eykur það lýðræði að fækka þeim ákvörðunum sem teknar eru af fólki sem þú getur kosið — og fjölga þeim ákvörðunum sem teknar eru af fólki sem þú getur ekki kosið?
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
1
10
49
792
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Klassískt frjálslyndi snýst um að verja frelsi, líf og eignir einstaklinganna. Ríkisvaldinu er ætlað að vernda þessi réttindi, ekki brjóta á þeim. Þess vegna á ríkið að vera sem fyrirferðarminnst. Andstæða frjálslyndis er sú eldheita trú margra (Já-manna) að ríkisvald þjóni alltaf góðum tilgangi og því eigi að leggja áherslu á að auka ríkisvald til að koma böndum á einstaklingsfrelsið(!?). Allar hörmungar 20. aldar voru sprottnar af ofurtrú á miðstýrt, haftalaust ríkisvald, sbr. kommúnismann í Sovétríkjunum, nasismann í Þriðja ríkinu, menningarbyltingu Maó í Kína o.s.frv. = Haftalaust ríkisvald leiðir til harðstjórnar. Með því að vilja færa valdið frá Íslandi til Brussel og afhenda það mönnum sem Íslendingar hafa ekki kosið og bera enga ábyrgð gagnvart Íslendingum, er miðað að því að taka frá Íslendingum möguleikann á að stýra því hverjir eiga síðasta orðið um gildandi lög og rétt hérlendis. Með þessu er ekki aðeins verið að grafa undan stjórnarskránni og lýðveldisstjórnarforminu, heldur er verið að vinna gegn hugsjón frjálslyndis í þágu ofríkis. Næst þegar þú hittir Já-mann geturðu notað þetta til að benda viðkomandi á að hann er sögulega, lagalega, pólitískt og hugmyndafræðilega rangstæður. Engin innantóm slagorð (svo sem "Já til að sjá") duga til að breiða yfir það.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
1
2
40
497
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Ríkisstjórn Íslands er skipuð fólki sem reynir að selja Íslendingum dýra farmiða um borð í sökkvandi skip. Burt með þetta fólk úr ráðherrastólum.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
1
6
50
537
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Núverandi ríkisstjórn hefur sett sjálfa sig í óbærilega stöðu, því pólitískt líf hennar hangir á þeim bláþræði að meirihluta þjóðarinnar finnist skynsamlegt ganga til viðræðna við ört hnignandi ríkjasamband um óhjákvæmilega afhendingu á peningum og valdi Íslendinga til ólýðræðislegs, skrifstofuveldis í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29.8. nk. Ríkisstjórnin hefur skapað sér þau nöturlegu örlög að þurfa nú með öllum tiltækum ráðum að vinna gegn hagsmunum Íslendinga með því að stuðla að vaxtahækkunum, lögleysu og almennri óstjórn til að draga upp þá fölsku mynd að Íslendingar geti ekki stjórnað sér sjálfir og þurfi að ofurselja sig erlendu ríkjasambandi. Ég hvet Íslendinga til að anda djúpt, halda ró sinni og kjósa nei til að losna við þessa óþjóðhollu ríkisstjórn. P.S. Til að rugla umræðuna hefur ríkisstjórnin endaskipti á eðlilegu verklagi: Í stað þess að fá samþykki meirihluta Alþingis fyrir aðildarumsókn og hefja svo aðlögunarferlið, er í reynd verið að leggja til framhald á aðlögunarferli sem hófst 2009.
IS
1
1
23
345
Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson@ArnarrThor·
Sl. fimmtudag sýknaði Landsréttur íslenska ríkið af bótakröfu manns sem sætt hafði 2ja vikna frelsisskerðingu án dóms og laga. Þvert gegn skýrum ákvæðum setts réttar höfðu yfirvöld vanrækt að upplýsa manninn um réttarstöðu hans, vanrækt að taka rökstudda, skriflega stjórnvaldsákvörðun - og þar með vanrækt að gefa honum kost á að neyta lögbundins, stjórnarskrárvarins réttar síns til að fá skorið úr því fyrir dómi án tafar að frelsisskerðingin stæðist lög. Hér sannast enn einu sinni lýsing Njáluhöfundar á því að réttarkerfi hvers tíma ráði ágætlega við rútínumál en kikni undan grundvallarmálum og láti þau eyðast í meðförum dómstóla. Myndin lýsir stöðunni betur en mörg orð.
Arnar Þór Jónsson tweet media
IS
1
1
21
364