Veit að Marcel átti marga aðdáendur hér þannig best að ég segi að hann varð bráðkvaddur í morgun. Við erum í áfalli og sorgin virðist óyfirstíganleg núna. Elsku fallegi besti prins var glaður og hraustur og duglegur allt sitt líf. Elsku elsku Marcel okkar.
"heppilegra að sektarfjárhæðin sé nokkuð viðráðanleg"
Nei.
Hækka sekt í 500k-1m
Senda ferðamann úr landi ef hann borgar ekki strax.
Íbúar alltaf sektaðir, ekkert elsku mamma.
Útskýra á landamærum
Hverjum er verið að hlífa? @svasva@aslaugarnavisir.is/g/20212098931d…
@brynhildurbolla Þú ert yfirleitt verðlögð miðað við hópinn sem þú tilheyrir. Þannig ef þú ert 21 og keyrir by the book ertu samt mögulega verðlögð eins og þú farir út á Granda á kvöldin að drifta. Ef þú keyrir vel og/eða lítið þá getur þarna lækkað tryggingarnar.
@brynhildurbolla Held að GDPR mál hafi hægt að þessu um marga mánuði og þau fái bara á endanum kennitala + score pr mánuð. En vissulega er eitthvað fyrirtæki einhversstaðar sem fær allskonar. En veit "algorithminn" ekki allt hvort eð er... Fólk hefur amk valið, skaðar engan (held ég)
Hvers vegna í ósköpunum er sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu leyft að hafa bara eitt útibú og það er í algjörlega bílamiðuðu hverfi í Kópavogi? Hefur þessi ríkisstjórn akkúrat engan áhuga á því að hjálpa til við að minnka bílaumferð? Þessu þarf að breyta @aslaugarna.
Held að það séu örlítil vonbrigði hjá mörgum að hlutabréfamarkaðurinn hafi ekki byggst upp hraðar og með fleiri félögum síðustu ár. Íslensk fyrirtæki eru örlítil í flestum samanburði - grunar að margir líti á þetta svona. Skiljanlegt, en varla gott.
Þegar ég byrjaði að skokka í haust fór ég rúman einn og hálfan kílómetra í einu, annan hvern dag, í um það bil mánuð. Það tók á. Svo lélegt var formið. Svo smá jók ég við. Í kvöld fór ég átta kílómetra, sem er það lengsta sem ég hef hlaupið síðan ég var unglingur. Núna: vín!
@sigurbjornsson Hafa á síðustu árum keypt stöndug fyrirtæki eins og Mulesoft og Tableau, þar hefur lítið breyst að því sem snýr að notandanum, annað en eðlileg þróun+viðbætur
Þetta hljóta að vera ein stærstu tæknikaup ársins. Mjög stórt fyrir Salesforce. Vonandi bara eyðileggja þeir ekki hið ágætla Slack. betakit.com/slack-to-be-ac…
Ahh frábært. Ekki nóg með að foreldrar séu með áhyggjur af geðheilsunni og því að vera leiðinlegir enda margir í fullri vinnu og að sinna börnum, verkefni sem taka meira en 100% tímans samanlagt, heldur eru aðrir líka að segja þeim að þeir séu leiðinlegir. ruv.is/frett/2020/11/…
@sveinnbirkir Hjá mér var þetta Banki -> Lífeyrissjóður -> Banki, en aðaldæmið í þessu eru nátturulega bara stýrivaxtalækkanirnar. Held það sé bara skynsamlegast að fylgjast með á síðum eins og Aurbjörg og prófa að reikna dæmið.
@bjorgvinio Afhverju er hlutfall smita utan sóttkvíar mikilvægari en bara actual fjöldi smita sem greinast utan sóttkvíar? Mörg smit utan sóttkvíar alltaf vont óháð sýnafjölda. Fer kannski eftir því hvort það sé verið að taka random sömpl eða bara fólk með einkenni fari í sýnatökur...
Enn á því að mikilvægasti Covid mælikvarðinn sé hlutfall smitaðra utan sóttkvíar af innanlandssýnum og að það sé mikilvægari mælikvarði en hlutfall smita í sóttkví af fjölda smitaðra.
Þriggja daga meðaltal þessa uppáhalds mælikvarða er á uppleið en fimm daga meðaltalið betra.
Verandi í fæðingarorlofi hef ég verið hugsi yfir þeim breytingum á fæðingarorlofi sem lagðar eru til. Þessi grein hjá Gró hittir alveg í mark.
visir.is/g/20202018820d…
Íslensk netverslun að vinna með 8 daga heimsendingu og senda mér bara annan skóinn. What a performance. Btw ekki sent heim heldur gat ég sótt í búð eftir 8 daga