Óskar Bragason ráðinn þjálfari Magna
Óskar gerði 2 ára samning við félagið, hann tók við Magna á miðju tímabili og er ánægja með hans störf hjá félaginu og hefur samstarfið gengið vel.
Við hlökkum til komandi tíma og óskum honum góðs gengis á komandi árum hjá Magna. #ástríðan
Sigur í nágrannaslagnum! ⚫️⚪️
Magni kom til baka í lokaleiknum. Ottó jafnaði metin eftir að hafa leikið vörn Völsungs grátt og skaut þrumufleyg upp í skeytin! Krissi Rós tryggði síðan sigurinn undir lok leiks með laglegri afgreiðslu.
#fotboltinet #ástríðan @krissiros
MARK TÍMABILSINS !! 💥⚽️
Krissi Rós með stórkostlegt mark!
Kristinn Þór Rósbergsson sýndi mögnuð tilþrif þegar að hann tók boltann á lofti fyrir utan teig og þrumaði honum í markið, út við stöng og óverjandi fyrir markmann Hauka.
@krissiros#fotboltinet #ástríðan
Þorsteinn Ágúst skorar fyrir Magna ⚽️
Heimamaðurinn Þorsteinn Ágúst Jónsson skorar sitt fyrsta mark fyrir Magna á Íslandsmótinu í ótrúlegri atburðarás. Sjón er sögu ríkari.
#ástríðan #fotboltinet
GEFÐU ALLT SEM ÞÚ ÁTT !! ⚫️⚪️
Magnamenn gefast aldrei upp. Sterkastir eru þeir þegar að hausta fer og norðanáttin á móti blæs. Þá andar inn um lungun trúin og þetta stóra og mikla hjarta slær fastar sem nokkru sinni fyrr.
Þakkir fyrir þrumuræðu! @gylfitr
#ástríðan #fotboltinet
Markasúpa og helstu atvik um helgina ⚽️🔥
Það fór fram rosalegur leikur síðasta sunnudag þegar að Magnamenn tóku á móti Ólafsvíkingum. Leikurinn var afar spennandi og margir vafasamir dómar. Allt myndskeiðið má sjá á Facebook og Instagram-síðu félagsins.
#fotboltinet #ástríðan
⚫️⚪️ Magni - Víkingur Ó 🔵⚫️
Magnamenn taka á móti lærisveinum Guðjóns Þórðarsonar í Víking Ólafsvík í hörku leik á sunnudaginn kl. 14:00!
Allir á völlinn - Áfram Magni ⚽️💪🏼
@Vikingurol#fotboltinet #ástríðan
Magnað mark hjá Gussa og Jesse ⚽️✨
Guðni Sigþórsson skoraði frábært mark í nágrannaslagnum gegn KF eftir laglegan undirbúning frá nýjasta leikmanni félagsins Jesse Devers !
@DeversJesse#fotboltinet #ástríðan
🔥🔥 Magni - KF ⚡️⚡️
Risastór leikur í fallbaráttunni ! Magnamenn geta minnkað muninn niður í 3 stig á nágranna sína sem eru í öruggu sæti með sigri - Miðvikudagskvöld kl. 18:00.
Allir á völlinn - Áfram Magni !! 💪🏼⚽️
@kristofer_oskar@KFthunders#fotboltinet #ástríðan
⚫️⚪️ Magni - ÍR 🔵⚪️
Magnamenn eru mættir aftur heim á víkina og þurfa nauðsynlega á sigri að halda þegar þeir mæta Breiðhyltingum í @IRFotbolti. Leiktími 15:00 á laugardaginn og vonumst við til þess að sjá sem flesta í stúkunni!
Áfram Magni !! ⚽️💪🏼
#fotboltinet #ástríðan
Jesse Devers í Magna ⚫️⚪️
Jesse er 25 ára írskur sóknarmaður sem hefur leikið í efstu deildum í heimalandi sínu með Galway United, Sligo Rovers og Finn Harps. Hann kemur upp úr akademíu enska félagins Wolves og á 9 unglingalandsleiki að baki!
@DeversJesse #ástríðan #fotboltinet
Kári Gauta í Magna ⚫️⚪️
Magnamönnum barst góður liðsstyrkur í síðustu viku þegar að Kári Gautason kom til okkar á láni frá KA. Hann er ungur og kraftmikill bakvörður sem verður gaman að fylgjast með í sumar!
@karigautason03 #ástríðan #fotboltinet
Krissi Rós kominn aftur!! ⚫️⚪️
Kristinn Þór Rósbergsson er mættur í svart og hvítt. Krissa ættu allir að þekkja en hann var markakóngur árin þegar við komumst upp í næst efstu deild og héldum sæti okkar þar.
Við bjóðum hann velkominn heim.
@krissiros #ástríðan #fotboltinet
Mörk og helstu atvik gegn @fcnjardvik ⚽️💥
Himininn er bleikur og blár en völlurinn heima er alltaf iðagrænn. Stuðningsmenn létu vel í sér heyra og var spilamennskan með þeim betri í sumar en niðurstaðan grátleg í leikslok!
@kristofer_oskar@Angantyrgauta #ástríðan #fotboltinet
⚫️⚪️ Magni - Njarðvík 🟢⚫️
Magnamenn mæta toppliði @fcnjardvik á laugardaginn kl. 14:00. Viðureignir þessara félaga síðustu ár hafa einkennst af mikilli baráttu og því má búast við hörku leik!
Allir á völlinn - Áfram Magni !! 💪🏼⚽️
#ástríðan #fotboltinet