Mitsu

114 posts

Mitsu banner
Mitsu

Mitsu

@Mitsu_cruiser

Sannleikshafi / skáldskapari

Mývatn Katılım Mart 2026
77 Takip Edilen54 Takipçiler
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Þessi meistari alltaf að ýlfra á mig, spyr frétta, veit að ég er einn af fáum sem er til í alvörunni. Stjórinn gaf mér viku frí herra tungl. Og ég vaki allar nætur og hlusta á hljóðið í ísskápnum. Sá er gamansamur. Hvíslar til mín frétta frá fjarlægum löndum. Býður mér í heimsókn. Við erum tveir í þessu saman. Vitorðsmenn.
Mitsu tweet media
IS
0
0
2
39
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Mitt land, mín á, mitt fjall, minn bær, mínar hænur, minn lax.
IS
0
0
6
42
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Þessi örvæntingafulli pappakassi með aðra heiðarlega tilraun að komast í rúvbux
Mitsu tweet media
IS
0
0
7
132
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Það þarf aðeins að hægja á tímanum á dögum sem þessum, ég þarf að ná að gera allt. Bölvun og blessun að hafa 1000 áhugamál.
IS
0
0
1
55
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Hamra sleggjunni í vegginn aftur og aftur og steypurykið þyrlast um allt herbergið. Hneppi skyrtunni vel niður og bringuhárin flæða frjáls og æðarnar eru að sprengja framhandleggina. Brjóta gamla ruslið og byggja þetta nýja feita fallega. Ég þurrka svitann af enninu og fæ mér vatnssopa drulluskítugur í framan og klóra sementsbita úr skegginu. Hækka vel í útvarpinu algjörlega botna draslið þegar sykursæta dúnamjúka dúllamúslan syngur sínu fegursta fyrir mig. Ég held áfram að berja sleggjunni við taktfasta trommuheilann og hún hvetur mig áfram. Við erum að byggja, ég og fagra fljóðið með femíníska ljóðið og við erum saman í þessu, tvær hliðar á sama peningnum.
IS
0
0
0
55
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Elskan mín ég var að sleppa því að borga staðgreiðslu, vsk, lífeyrissjóð, mótframlag í lífeyrissjóð, tryggingargjald, gjöld utan staðgreiðslu, fyrirfram innheimtan tekjuskatt, fjármagnstekjuskatt, erfðafjárskatt, fasteignagjöld, bifreiðargjöld, kílómetragjald, kolefnisgjald, bankaskatt, stimpilgjald og helvítis stéttarfélagið. Nú getum við loksins byggt okkur framtíðarheimilið. Demantar og gersemar fyrir þig gullið mitt. Gerum þetta sjálf.
IS
1
0
4
101
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Dagur að kveldi kominn. Yfir borginni er snemmsumars stilla. Í fjarska trónir Skarðsheiðin tignarleg í kvöldljóma með appelsínubragði. Akrafjallið lúllandi og Snæfellsnesið skýjað. Ég velti því fyrir mér hvort að það sé fullbjart hinum megin við nesið. Vélar þenjast á fleygiferð um götur hennar eins og oft á kvöldum sem þessum. Ég hugsa um að vera á einu slíku hjóli og elta birtuna. Ef ég fer nógu hratt gæti ég náð deginum aftur og aftur og aftur. Fuglar fljúga í fjarska. Ég sé þá ósköp vel. Hverfið er að breytast, þar sem ég hristist fyrir skömmu í bergsprengjum er nú risinn fín íbúðablokk. Kranar og hálfbyggðir steypukjarnar í fleiri áttir. Borg í byggingu. Fyrr í kvöld stóð sjálfur Apollon ljóslifandi fyrir framan mig og flutti slíka þrumuræðu að frussaðist yfir mig allan. Rödd hans mikil og líkaminn sterkur. Karlinn í tunglinu skín á ljósbláum himni, svo óvenjumagur í kvöld. Hann fær sér tók af sinni pípu og við skiptumst á kveðjum. Capríin er komin í filterinn. Það er ró í Reykjavík.
Mitsu tweet media
IS
0
0
4
163
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Nú er ég djúpur í mörgum kreðsum og fylgist náið með vakningunni. Þetta eru síðustu fascist boyfriend/libtard gf kosningarnar. Mun aðeins sakna kryddsins en næstu alþingiskosningar munu einkennast af þverpólitískri sátt um hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Þetta lenti ágætlega fast með Kristrúnu þegar hún henti lasnasta liðinu úr sínum flokki til að verja velferðarkerfið. Hægrimenn eru ekki á móti velferðarkerfi sem raunverulega grípur þá sem eru þeim nánir og þurfa á hjálpinni að halda en forherðast í að sjá það misnotað, sem er núverandi staða. Það sem við erum að horfa upp á núna eru síðustu afgangarnir af gamla góða vókinu og birtingarmynd þess er sjálfur upprunin, PC corporate mannauðsbabbl nokkurra oddvita með broslegum móralfaggasirkus. Ísland uppi! Ekki flókið
Mitsu tweet media
IS
1
0
11
319
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Það er óskiljanlegt fyrir mér að það sé einhvers konar hægristefna á Íslandi að vera á móti innviðaframkvæmdum og almenningssamgöngum. Á móti strætó, á móti lestum, á móti sporvögnum. Þetta er rangt frá grunni. Innviðir og almenningssamgöngur eru eitt af fáu sem hið opinbera á að gera. Langtíma fjárfesting í samfélaginu og leyfir þéttustu kjörnunum að blómstra í fegurð. Vissulega eru vinstri stjórnir alveg einstaklega lúnknar við að kveikja í peningum í framkvæmdum. Það væri kannski hægt að kenna það í LHÍ. Einnig er vert að minnast á að algjör grunnforsenda svona verkefnis er öruggt samfélag og traust milli fólks. En verkefnið sjálft, hugmyndin sjálf, er nákvæmlega það sem borgin þarf. Ég fór til Sviss fyrir nokkrum árum og gapti yfir vegagerðinni og samgöngunum. Fallegustu hús sem ég hef séð í bröttustu hlíðum Alpanna. Lestarteinar lengst uppi, í gegnum fjöllin og út í dali við fagurblá vötn. Þetta er auðveldlega hægt. Annað er skortshugarfar þjáningarsinnans. Enginn hérna getur sagt mér að sögulegar evrópskar borgir séu ekki þær fallegustu í heimi. Þetta er sjálfsagt mál fyrir framkvæmdaglaða fegurðarsinna. Almenningssamgöngur eru innviðamál, og innviðamál eru framfaramál, og framfaramál eru þar sem hægrimenn ættu að standa fastast, ekki á móti.
IS
3
0
13
983
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Sit og hlusta á hann tala. Útskýrir heimsýn sína af trúarhita og litlu æðarnar tútna grænar í baugunum. Ég kinka kolli þungur á brún á meðan uppvakningurinn fer með versin. Speki aftan af mjólkurfernu og siðferði á leikskólastigi. Hann segist vera mikill mannþekkjari, greina hina góðu frá þeim illu undir eins. Marxistinn endurtekur bænina aftur og aftur með grátstafinn í kverkunum. Sjálfur virti ég hann fyrir mér eins og geðlæknir. Ég pota í höfuð hans, og sjá, á fingrinum eru trefjar og rótartægjur úr þráðum tauga hans. Ég lýsi í holuna og skoða innvolsið gaumgæfilega. Ég veifa höndinni rólega fyrir framan hann en frásögnin heldur áfram stjörfum augum. Við klárum úr krúsinni og föðmumst í kveðjuskyni. Ég fann skáldið, sem hældi frammistöðu minni. Þetta er nú bara venjulegt líf. Hvert einasta matarboð er nákvæmlega svona. Og þetta er alltaf eins. Við vitum allt um þá en þeir ekkert um okkur.
IS
1
0
6
586
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Sykur í ariel og ég plögga inn við freestyler sjáumst á hinni hliðinni
IS
0
0
1
99
Sigmundur Davíð
Sigmundur Davíð@sigmundurdavid·
Þetta er alveg á mörkunum (þ.e. bæjarmörkunum). Leið Mosfellsbæjar til að segja: Velkomin til Reykjavíkur!
Sigmundur Davíð tweet media
IS
3
0
41
3K
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Grafið út í garði
Mitsu tweet media
IS
0
0
1
64
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Mitsu tweet media
ZXX
0
0
3
74
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Það er búið að segja allt, skrifa allt. Einungis flug tímans smíðar nýtt samhengi. Standandi á öxlum jötna rekst maðurinn á nýjung í óendanlegu rúmi hugans. Einstök frumleg hugsun. Sú fyrsta og eina sem hann mun fá. Hann þakkar feðrunum og skilar henni sem gjöf til heimsins.
IS
1
0
7
184
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Afsakið offiser en hvernig er það “ógnandi hegðun” að skuggaboxa syngjandi niður laugaveginn? Tssh tssh deutschland den deutschen, tssh tssh ég og uwu-stalin erum að lækka fasteignaverðið tssh tssh
Mitsu tweet media
IS
0
0
3
120
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Ég og Vatnsmýrar-Homelander erum olíubornir í stynjandi mogg off með handlóðin. Hinum megin við speglanna er hópur af þýskum vísindamönnum sem grandskoðar okkur til að velja hið fullkomna aríska eintak og kynna fyrir foringjanum. Þeir völdu síðan gæja Í hip thruster vélinni sem lyftir mjöðmunum hátt eins og nunna að undirbúa myrrusmurða trúboðun við altarið. Martraðarkennd reykelsiseitrun fyrir okkur mogglander. Heimur versnandi fer.
IS
0
1
6
178
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Umsókn í EU er undirgefinn rassaleikur kokkálsin
IS
0
0
5
157
Mitsu
Mitsu@Mitsu_cruiser·
Ein nótt af tíuþúsund þegar litir sálarinnar blandast í rafmögnuðu sambandi eins og elding í flösku er það hæsti tindur tilverunnar. Líkt og síðsumars blómstur gefur það hversdagsgrámanum myndskreytta bókakápu um fjarlæg ævintýr. Hversu raunverulegt getur þetta orðið? Það er hægt að drekka úr lindinni hér og nú.
IS
0
0
3
124