Andrea Sigurðardóttir
3.3K posts


@andreasig Fólk með enga dómgreind er ekki bara með kosningarétt, heldur líka í framboði! 🤯
IS

Líka:
Hvers vegna virkar allt í einu „allir vinna saman“ pæling þegar ýmsir vinstri flokkar hafa útilokað samstarf með „ákveðnum“ flokkum, hvort sem það er á málefnalegum, hugmyndafræðilegum eða bara hæpnum forsendum?
Af hverju getur Sanna allt í einu unnið að málefnum með D og M í mestu vinsemd sem var óhugsandi bókstaflega fyrir korteri?
Make it make sense.
Hún hefði kannski átt að „hugsa hlutina öðruvísi og upp á nýtt“ í kosningabaráttunni.

IS

Vinstri flokkarnir fyrir rúmu ári: „Við þurfum að sýna ábyrgð og mynda þennan meirihluta“ (til að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn komist í stjórn).
Vinstri flokkarnir í dag (þegar Sjálfstæðisflokkurinn getur myndað meirihluta til hægri með Miðflokki): „Borgarstjórn getur alveg unnið saman án þess að myndaður sé meirihluti!“
Bara svona ef einhver efaðist um að þetta væru vindhanar sem skipta um skoðun eftir því hvernig blæs.
IS

Það er aðeins eitt! sem mun fá mig til þess að kjósa XD.
Ef þeir lofa að gera @andreasig granna aftur🙏
#GAGA
IS
Andrea Sigurðardóttir retweetledi

Einn vinkill í þessu Jóns Gnarrs/RÚV máli er hnignun Tvíhöfða. Eitt sinn voru þeir vinirnir á bakvið grófasta grín sem fyrirfannst á Íslandi. Þeir hafa núna verið smættaðir niður í að þiggja greiðslur frá ríkinu fyrir PG-rated Spaugstofugrín til að þoka áfram pólitísku máli sitjandi ríkisstjórnar.
IS
Andrea Sigurðardóttir retweetledi

Að halda því fram að við myndum ráða hverjir veiða af því að kvóti fer til ríkja stenst ekki lög ESB. Þú þarft nefnilega enga 'sögulega veiðireynslu' ef þú átt nægan pening til að kaupa fyrirtækin sem eiga hana. Þetta kallast kvótahopp / Quota Hopping og ESB-dómstóllinn hefur margstaðfest að það sé löglegt. Sjá skýrsluna neðst.
Hér eru dæmi sem síðan hjá þér mætti nefna eða taka tillit til og munu líklega gerast hér eins og í öðrum ESB ríkjum.
1. Hvað gerðu Spánverjar í Bretlandi? Spánverjar áttu enga sögulega reynslu á breskum miðum. Hvað gerðu þeir? Þeir keyptu breska báta og kvóta. Bretar reyndu að stoppa þetta með lögum til að vernda eigin sjómenn. Málið fór fyrir Evrópudómstólinn (hinn frægi Factortame dómur). Bretar töpuðu. Dómstóllinn sagði að það væri brot á reglum ESB að meina spænskum ríkisborgurum að eiga breskan kvóta. Bátarnir flagguðu breskum fána en aflinn og arðurinn fór beint til Spánar.
2. Hvað gerðu Svíar í Danmörku? Í stað þess að biðja ESB um kvóta á grundvelli "sögulegrar reynslu" fóru sænskar stórútgerðir einfaldlega og keyptu upp stóran hluta af danska uppsjávarflotanum. Bátarnir eru skráðir í Skagen, en eigendurnir eru sænskir og fjármagnið rennur til Svíþjóðar. Danir gátu ekkert gert þótt þeir hafi verið komnir með einhverjar sérreglur um að þetta þyrftu að vera danskir sjómenn sem ættu að eiga kvóta í dk. Til að toppa það þá eiga svíarnir flestir sér félög utan um kaup og kjör sjómanna svo launin renna til Svíþjóðar en ekki Danmerkur. Það er yfirleitt ekki hlutaskiptakerfi hjá sjómönnum í EU eins og þekkist hér heima þar sem sjómenn fá hluta af aflanum. Þú mættir því bæta við glæru um áhrifin á laun sjómanna ef erlendum skipað yrði flaggað inn á íslandi og farið að landa með erlenda áhafnir eins og gerist í hinum ríkjunum.
3. Hvað gerðist í Eystrasalti? Skoðaðu 'litháíska' ofurtogarann Margiris. Hann er að stórum hluta í eigu hollenska risans Parlevliet & Van der Plas. Hollendingar keyptu sér einfaldlega aðgang inn í lögsöguna.
Svo er önnur dæmisagan þar hvernig danirnir/svíarnir keyptu Banginis UAB og landa í dag öllum aflanum í Skagen á meðan fiskverkafólkið í Litháen missti vinnuna því það átti að bræða heimildirnar í skagen.
Vefsíðan hjá þér er flott en efnislega skautar hún framhjá því hvernig útgerðir og fjármagn í ESB virkar í raun og veru þó Gemini geti lesið lögin og verið með sína túlkun útfrá bókstafnum. Ef Ísland gengur í ESB fellur bannið við erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi úr gildi. Spænskir eða hollenskir útgerðarrisar þurfa ekki að semja við íslenska ríkið um 'sögulegan rétt' því það er ekkert að fara að stoppa þá í að kaupa bara Brim eða Síldarvinnsluna á markaði og dæla fiskinum þangað sem hentar.
Íslenskar útgerðir eru samt orðnar frekar stórar í samanburði við þær Evrópsku svo ég hef alveg trú á að þær geti sótt fram en dæmi hver fyrir sig.
Hér er svo uppfærð skýrsla sem sýnir hvernig 5 stærstu í hollandi hafa gert þetta um alla Evrópu. bloomassociation.org/wp-content/upl… skýrslan var uppfærð í fyrra ef þú vilt lesa þér til um hvernig hlutirnir raunverulega fara fram í EU þó lögin segi oft annað.
IS
Andrea Sigurðardóttir retweetledi

Að sjá Ólaf Ragnar Grímsson rísa upp úr værum svefni til þess að taka slaginn aftur fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar kveikir í einhverju í mér. Það er forn orka í þessu. Minnir mig á þegar Cincinnatus yfirgaf plóginn til þess að taka við stjórn rómverska hersins á neyðartíma til varnar lýðveldinu.
IS

@olikalli4 Þú getur alveg slakað á, ég er bara að slá á létta strengi. Við hérna hægra megin í lífinu gerum það stundum, höfum gaman og grínumst. Ég veit að þetta hljómar framandi en ég mæli með!
IS


Ég held það séu ekki til mjög nýlegar tölur en það var unnin skýrsla í utanríkisráðuneytinu ef ég man rétt árið 2018 þar sem þetta neðangreinda töflu er að finna. Þetta gæti hafa breyst eitthvað á 10 árum en varla svo að hlutfallið sé mikið hærra en kannski 15%. Svo er valid punktur að hver gerð hefur í svona æfingum jafnt vægi sem er ekki endilega sanngjarn mælikvarði. Engu að síður standast þær fullyrðingar ekki skoðun að við séum búin að innleiða megnið af eða innleiða 80% af ESB regluverkinu, eins og jafnvel utanríkisráðherra hefur haldið fram.

IS

@andreasig Takk fyrir! Ég fer í að laga þetta. Áttu góða heimild eða bara stofnunarsíðu sem þú telur að taki þetta vel fyrir?
IS

Ég setti upp ESB Vaktina, vefsíðu og kerfi sem safnar fullyrðingum úr umræðunni um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna, ber þær saman við gögn og birtir niðurstöðurnar opið með hjálp gervigreindarlíkansins Claude.
Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra.
esbvaktin.is
IS

Það er til fólk sem sér þetta og bara hugsar:
Úhhh ég vil meira svona 🇪🇺😍🇪🇺
Jóhann Óli Eiðsson@jedissson
Þetta reglugerðarheiti fer alveg á topp 5 listann yfir þau ESB-legustu.
IS
Andrea Sigurðardóttir retweetledi





