@Jon_Gnarr Ert þú að biðja lögregluna að sjóta börn með rafmagnsbyssum?!
Hvað næst? stríðsglæpavopn eins og klasasprengjur sem Pútin ætlaði að nota gegn sakleysingjum í Úkraínu?
Fékk tölvupóst tveim vikum fyrir útskrift að ég fái ekki að útskrifast vegna þess að ég hafði ekki tekið íslenskugrunn. Fékk 9.0 fyrir lokaverkefnið mitt, vorum næst hæstir og ég ætti að vera að útskrifast með 8.7 í meðaleinkunn.
Kann víst ekki að skrifa ritgerðir né koma fram.
Er einhvern tíma þögn í hausnum á ykkur? Bara alger þögn? Ekki síbylja af setningum, ýmsar hugsanir um fortíð, framtíð eða nútíð, tónlist frá hinum og þessum tímabilum lífs þíns, stundum með myndashowi, og allt þetta yfirleitt í einum hrærigraut að spilast á sama tíma? Þögn? Ró?
@RobertArnar97 Það var einhver meistaranemi í Umhverfisfræði eða einhverju álíka að rannsaka einmitt þetta í Urriðaholti í fyrra. Skoða áhrif litla læksins á vatnið fyrir neðan
@larayoh Ég vinn mikið í Skarðshlíðinni og það er verið að sprengja jörðina á næsta vinnusvæði. Alltaf þegar pípið kemur stoppa allir til þess að finna fyrir skjálftanum saman.
Hej allt unga eða ekki unga fólk hér á twitter með allskonar skoðanir og pælingar í sambandi við jöfnuð, velferð og kjör. Af hverju takið þið ekki þátt í starfi stéttarfélaga til að hafa áhrif?
@ausabausa1 Dóttir okkar var í 5 daga á vökudeild og við fundum fyrir svipaðri tilfinningu held ég. Einn erfiðasti tími lífs okkar og við gátum ekki haft hana hjá okkur.
En hún er nú 8 vikna og dafnar æðislega vel.
Treysti öllum á vökudeildinni 100%. æðislegt fólk
Ég átti dóttur mína í gær nótt og hún er búin að vera á vökudeild síðan. Þetta er fyrsta nóttin min án hennar í níu mánuði. Þetta er mjög einmanaleg tilfinning💔
@Kisumamma Höldum ekki upp á það sem sið beint, en komum saman og eldum þetta hefðbundna Þakkargjörðarfæði. Fellur ekki alveg á daginn en kannski næsta fös/lau. Unnusta mín var skiptinemi í BNA
@BirkirBangsi@dagbjorg_ Fjárfestar sjá notendatölur, segja vá nice og gefa fjármagn í þeirri von að geta notað gögn þessara notenda í eitthvað annað. eða eitthvað, idk
Geggjað að vera ólétt og hitta aðra ólétta konu í fjölskylduboði og allir í boðinu keppast við að bera bumburnar okkar saman, hennar alltof lítil og mín örugglega óvart tvíburar. Geggjað gaman og mikið stuð og gleði 🫥
@TinnAndersson Bjó hjá tengdó í nokkur ár og þau voru með scheffer, aldrei vandamál og hafði aldrei verið ofnæmi áður. Núna þegar hann er orðinn 9 ára fæ ég stundum útbrot og kláða þegar ég atast í honum.
Fólk sem þarf að láta dýr fara vegna ofnæmis. Getur ofnæmi fyrir dýrum bara allt í einu komið? Veit fólk ekki að það sé með ofnæmi? Hefur það aldrei umgengist dýr áður en það fær sér dýr? Aftur, getur svona ofnæmi bara allt í einu gert vart við sig? (Mín versta martröð þá).