Elvar Már Valdimars
907 posts














Erik Tobias Sandberg hefur skrifað undir samning við ÍA út leiktíðina 2025 🤝 Erik (2000) er norskur varnarmaður sem er uppalinn hjá Lillestrøm en kemur til okkar frá Jerv í Noregi. Erik á að baki 64 landsleiki með yngri landsliðum Noregs, allt frá U-15 ára liðinu til U-20 ára landsliðsins ⚽ Erik er sterkur varnarmaður með góða leiðtogahæfileika, frábæran leiksskilning og tæknilega getu 💪 Við bjóðum Erik innilega velkominn til félagsins 💛 #fótbolti #kfía

Hinir ósnertanlegu 💪 ÍA 1993 lenti í 1. sæti í kjöri Vísis á bestu fótboltaliðum Íslands síðustu fjörutíu ár (1984-2023). ÍA varð Íslandsmeistari með gríðarlegum yfirburðum 1993 og vann bikarkeppnina að auki. Skagamenn jöfnuðu stigamet og fjölga þurfti leikjum um níu til að markamet þeirra yrði slegið. ÍA kórónaði svo frábært tímabil með glæstum sigri á Hollandsmeisturum Feyenoord þar sem Ólafur Þórðarson skoraði frægt skallamark. visir.is/g/20242525746d…





