Fimleikafélag Hafnarfjarðar
6.2K posts

Fimleikafélag Hafnarfjarðar
@fhingar
Opinber síða knattspyrnudeildar FH. Hér birtast fréttir knattspyrnudeildar FH. Instagram: fhingar / Facebook: FHingar
Kaplakriki Katılım Eylül 2009
213 Takip Edilen2.1K Takipçiler

Kári Kristjánsson hefur verið seldur tilbaka í Þrótt Reykjavík. FH og Þróttur komust að samkomulagi um kaupverð í dag. Við óskum Kára góðs gengis í Laugardalnum.
"Kári kom að máli við okkur fyrir ekki svo löngu síðan og lýsti yfir vilja að fara aftur heim. Þróttarar voru tilbúnir að borga uppsett verð fyrir hann og í framhaldinu ákváðum við að leyfa leikmanninum að fara. Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið." Davíð Þór Viðarsson

IS


Eins og síðustu þrjú ár mun FH gefa út sérstaka góðgerðartreyju sem þriðja búning sinn í lok maí.
Við höfum leikið sérstaka góðgerðarleiki í treyjunni og einnig gegn KR í vesturbænum, þar sem varabúningur okkar er svartur og ekki gjaldgengur gegn þeim. Þar sem góðgerðartreyjan er ekki komin út í ár var ákveðið að fara ótroðnar slóðir í búningavali kvöldsins 🤙
🔵Ákveðið var að fara í gamla bláa litinn sem prýddi varabúning FH í mörg ár. Treyjan sjálf er frá Henson og er mynstrið óður til Aston Villa treyjunnar sem Henson hönnuðu fyrir þá árið 1986.
FH á svo sannarlega tengingu við Aston Villa - liðið náði glæsilegu jafntefli á Villa Park 2008 og svo hefur núverandi þjálfari liðsins, Jóhannes Karl, spilað fyrir félagið.
Allt var þetta gert í samstarfi við Nike - þar sem við vildum ekki flýta frumsýningu treyjunnar.
Hlökkum til að sýna ykkur afraksturinn eftir rúman mánuð! ⏳💣
#ViðErumFH




IS


















