@janm1086 Mátt ekki skilja sig mig svo að ég sé að verja talsmátann á Klausturbar. Hann var viðstöddum þingmönnum til ævarandi skammar. Ég er bara að benda á ótrúlega hræsni Þórðar Snæs sem vissi vel að hann sjálfur hafði látið sambærileg og verri orð falla skriflega (þá ca. 25 ára).
@gauiglobal En Sigmundur sagði þessi orð sem þingmaður ekki í einhverju bloggi löngu áður en hann varð þingmaður, plus Þórður baðst afsökunar eitthvað sem ég hef aldrei heyrt Sigmund segja
🟥Maki A: Ég ætla að skilja við þig í vor og vera óþolandi á heimilinu þangað til.
🔵Maki B: Ef það er þannig þá er hreinlegast að skilja strax í nóvember og báðir geta svo hafið nýtt líf.
🟥 Maki A: Þú ert svikari að gefast upp í miðju hjónabandi. Ég er farinn😡
@bjarkovic “Skrifstofa dagsins” hefði auðvitað átt að vera efst á lista. Einstaklega fyrirsjáanlegur frasi. Ætla svo ekki að minnast á tásumynda-holskefluna sem fljótlega varð afar ófyndin.
Fyrirsjáanlegu og ofnotuðustu frasar Facebook.
1. Hvert flaug tíminn? (Einungis notað af kvk)
2. Nú reynir á mátt Facebook.
3. Brúðkaupsfín.
4. Skil þetta bara eftir hér.
5. Ekki hafa áhyggjur af mér (Notað af fólki á ferðalagi erlendis í góðu veðri).
Langafi með grín á miðlunum í upphafi árs 1917. Skáldar upp trúlofun tveggja sveitunga sinna í vikublaðinu Lögréttu. Sér að sér og birtir leiðréttingu um vorið.
@janm1086@mblfrettir Ósammála. Það er ríkur vilji hjá honum og fleiri að breyta þessum kafla. Það strandar frekar hjá þeim óbilgjörnu flokkum sem eru aldrei til viðræðu um neitt annað en að taka upp hina svokölluðu “nýju stjórnarskrá”. Þess vegna hefur málið verið stopp.
Ánægður með að auglýsing Kötu Jak vekur athygli á glæstum árum hennar sem stigavörður í Gettu betur.
Ég kynntist Kötu einmitt fyrst þar. Þau þrjú ár sem hún var stigavörður var ég akkúrat keppandi.
Hún var betri stigavörður en ég keppandi.
Íbúar Reykjavíkur: Getiði plís mokað göturnar okkar!!
Reykjavíkurborg: Við erum með stýrihóp um endurskoðun á þjónustuhandbók vetrarþjónustu hjá Reykjavíkurborg.