@KottGraPje Miðað við að allir segjast vera að opna sig og opinbera sálina öllum sem vilja heyra þá held ég að það sé einn gaur sem skrifar fyrir alla rappara á Íslandi. Max tveir.
Birnir er frábær rappari. Ég nenni ekki að hlusta nema svo og svo mikið á þvarg um dóp og stelpuvesen, er bara orðinn of gamall og mikill nörd, en hann er fkn trylltur rappari.
@byrkir Já, það hugsa ég líka. En það er líka eins gott að við höfum eitthvað fail safe á AI stöffinu því það verður fljótt að hafa vit fyrir manninum...
@byrkir Grundvallaratriði í þessu er að frelsi er mjög ill nýtt. Fólk heldur ýmist að það eigi og megi. En Mill hitti held ég á einhvern nagla þegar hann talaði um að frelsi einstaklinga ætti takmarkist þar sem það er farið að skaða aðra.
Öll mín geðveiki hefur verið ofurjarðbundin. Algerlega á öndverðu við ofsafengna sturlun, trylling og andagift. Einu sinni gafst ég upp á að reyna að drepa mig af því að ég fann ekki hentugan stað í íbúðinni til að festa upp snöru. Settist í sófann með fjöltengi í kjöltunni.
Það er mér hulin ráðgáta hvernig vinir sonar míns finna ALLTAF einhverskonar flautu þegar þau eru í heimsókn. Finnst ég alltaf vera að henda flautum. Og ég er alltaf jafn hissa þegar dásamleg hljóðin byrja að berast. Sem segir mér að sokkar gufa ekki upp. Þeir breytast í flautur.