Þorsteinn 🌵 Kristinsson
544 posts

Þorsteinn 🌵 Kristinsson
@thorstk
Tölvunarfræðingur (HR'19) w57DuiBlcnQgc25pbGxpbmd1ci4= Hundar og kettir eru mínar ær og kýr








Mér var haldið í stöðu sakbornings í 961 dag í rannsókn sem staðið hefur í nálægt þrjú og hálft ár. Á þeim tíma var ein skýrsla tekin af mér, í ágúst 2022, fyrir rúmlega 25 mánuðum síðan. Á meðan fékk handfylli manna, með hjálp ýmissa skráðra fjölmiðla, að spinna ótrúlegar lygasögur utan á þetta mál. Setja fram súrrealískar staðhæfingar sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Ég, og kollegar mínir, fengum þessa réttarstöðu vegna þess að hluti okkar skrifaði fréttir um það hvernig hópur fólks, með vitund og vilja stjórnenda eins stærsta fyrirtækis landsins, vann skipulega að því að reyna að hafa æruna, heilsuna og lífsviðurværið af blaðamönnum sem fjölluðu um fyrirtækið. Hvernig hópurinn reyndi að hafa áhrif á kosningar í stéttar- og fagfélagi blaðamanna. Hvernig hann skipulega reyndi að rægja færeyska blaðamenn. Lagði á ráðinn um að setja fram tilefnislausa kæru á hendur uppljóstrara gagngert til að reyna að koma í veg fyrir að hann bæri vitni gegn fyrirtækinu. Ætluðu að draga úr trúverðugleika rithöfunda sem hafði gagnrýnt fyrirtækið, Hafa áhrif á hverjir leiddu lista stjórnmálaflokks, planaði víðtæka gagnasöfnun um stjórn félagasamtaka sem berst gegn spillingu og hvernig bregðast átti við gagnrýni frá sitjandi seðlabankastjóra á stríðsrekstur fyrirtækisins gagnvart nafngreindu fólki. Þetta voru allt einstakar aðfarir í sögu Íslands. Þær voru lýðræðislega stórhættulegar. Með því að ráðast í þessa rannsókn sem átti sér aldrei nokkurn grundvöll, eftir handriti eins þess sem við fjölluðum um og með opinberum stuðningi ákveðinna stjórnmálamanna, og viðhalda henni í allan þennan tíma sem raun ber vitni, var aftur reynt að hafa af okkur æruna, heilsuna og lífsviðurværið. Ömurleg tilraun lögreglunnar á Norðurlandi eystra til að réttlæta aðfarir sínar gagnvart blaðamönnum á Facebook-síðu sinni, sem mér skilst að sé einstök í Íslandssögunni, gerir ekkert annað en að gera svartan blett á réttarríkinu enn stærri. Allt þetta ferli er einstakt í sögu Íslands. Og er líka lýðræðislega stórhættulegt. Mér er mjög létt yfir því að þessari aðför sé lokið, en ég er líka mjög reiður yfir því sem hefur fengið að eiga sér stað. Málið hefur breytt sýn minni á samfélagið og hafði áhrif á að ég ákvað að skipta um kúrs í lífinu. Það hefur sýnt mér að ef maður stendur ekki upp og berst fyrir því sem er réttlátt, sanngjarnt og satt, jafnvel þótt að valdamesta fólk landsins sé mótaðilinn, þá gerir það enginn fyrir mann. Þetta má aldrei gerast aftur og ég ætla að beita mér að öllu afli fyrir því. ruv.is/frettir/innlen…



Svo er Oatly kókómjólkin er bæði betri og ódýrari.








If you're wondering why the Columbus airport, which serves a metro area of 2.15 million, has only a single bus route that's 8x slower than driving and operates hourly, consider this: last year, parking was THE largest source of revenue for the airport.









