Árni Helgason
5.4K posts

Árni Helgason
@arnih
Lögmaður og hlaðvarpsstjórnandi en fyrst og fremst manneskja.
Reykjavík เข้าร่วม Şubat 2008
1.3K กำลังติดตาม4.5K ผู้ติดตาม

Mér fannst alltaf jafnáhugavert hvernig þjóð eins og við sem tökum persónuvernd mjög alvarlega, látum okkur hafa það að samþykkja vafrakökur og persónuverndarstefnur, blörrum andlit fólks á myndum, vorkennum innbrotsþjófum fyrir að vera að lenda á upptöku í eftirlitsmyndarvélum og blótum algóryþmanum fyrir að vera stöðugt að ota einhverjum varningi að okkur, umbreytumst allt í einu í nokkra daga í ágúst á hverju ári og veggfóðrum internetið með upplýsingum um tekjur næsta manns eins og ekkert sé sjálfsagðara.
IS

Ok er eitthvað meira óþolandi en bílstjórinn sem er fremstur í röð á ljósi, fastur í skjánum og sér ekki að það er komið grænt, þarf bara aðeins að klára að læka eitt og setja eitt komment og svo kannski bara aðeins að tékka á mbl og klikka á eina frétt og svo rankar hann við sér, lufsast af stað akkúrat þegar gula ljósið er að koma og skilur svo alla röðina eftir á rauðu ljósi áfram? (Þetta tvít er mögulega skrifað bíðandi í röð á rauðu ljósi…)
IS

@petur_maack Þurfti kannski ekki mikið til, hann fíraði kannski upp í rettu og það bara misstu sig allir, ekki séð annan eins flippkisa, töluðu um það árum saman
IS

@arnih Hvorugur er John Daily. Hann er u.þ.b. eins lífsmarkið í þessu sporti undanfarna áratugi.
IS

Eitt sem er svo gott fyrir íþróttir er þegar aðalkeppinautarnir eru ólíkir karakterar, það gerir aðdáendunum svo auðvelt að tengja. Rory vs. Bryson er þannig einvígi fyrir golfið. Þeir virka eins og sitthvor týpan, Rory er fjármálastjóratýpa, sem stundar útihlaup, fylgist vel með svefninum í úrinu og skilar skattframtalinu fyrripart janúar á meðan Bryson er tech-bro á carnivore-mataræði með vel dreift rafmyntasafn. Rory er vítamín og langtímasamband, Bryson er mækródós og góð helgi í bústað.


IS

@JonJKarlsson Það væri heiður. Rétt þó að taka fram að í samráði við þjálfarateymi mitt hefur verið tekin ákvörðun um að veita engin viðtöl fyrr en að loknu meistaramótinu í sumar.
IS

@StefanHagalin Þetta eru golfarar, skulum ekki gera of miklar væntingar!
IS

@arnih Hljóma samt báðir eins og tvær vel leiðinlegar baunateljaratýpur án innblásturs, teljandi lasta og skapandi dýptar.
IS

Í viðtali við Rúv segir Ásthildur Lóa að aðstoðarmaður forsætisráðherra hafi látið hana hafa upplýsingar um konuna sem sendi bréfið. Þetta er ekki í samræmi við það sem kemur í sérstakri leiðréttingu forsætisráðuneytisins "um meintan trúnaðarbrest" þar sem segir að fyrir utan tölvupóstssamskipti hafi engin önnur samskipti átt sér stað um málið.
Hvort er það?
Lítur ráðuneytið svo á að það teljist ekki samskipti um málið að ráðherrann fái nafn og heimilisfang konunnar og fari svo að hringja ítrekað í hana og mæta óboðin á heimili hennar?
Það er líka áhugavert að sjá að ráðuneytið tjáir sig ekkert um málið að öðru leyti. Þetta er náttúrulega ein útgáfan af stjórnsýslu, ef forsætisráðherra er sent bréf með upplýsingum um mál sem varða tiltekinn ráðherra, má viðkomandi þá eiga von á því að að sami ráðherra banki upp á heima hjá viðkomandi nokkrum dögum síðar?

IS

@AsiPals Ráðherrann hefur lýst því þónokkrum sinnum opinberlega hvernig þetta mál þróaðist og þar kemur fram að þau hafi ekki greitt af láninu frá því upp úr hruninu.
IS

@arnih Þetta stemmir ekki alveg: “Í dóminum segir að Ásthildur Lóa og Hafþór hafi hætt að greiða afborganir af heimili sínu árið 2014 en þó búið í því til ársins 2017, þegar húsið var selt á uppboði, og leigt það frá því ári þangað til að þau keyptu það aftur.” visir.is/g/20252700378d…
IS

Það er fróðlegt að sjá svart á hvítu eftir allt saman hvað „ofbeldið“ og öll gífuryrðin og drullið á embættismenn, dómara og kjörna fulltrúa snýst um í raun og veru.
Í stuttu máli er þetta svona: Fasteign er keypt árið 2007 á 55 milljónir króna með 30 milljón króna láni. Ekki er greitt af láninu frá 2009 til 2017, eða í 8-9 ár en samt er búið í húsinu allan tímann.
Eftir að húsið fer á nauðungarsölu og verður eign bankans, fær ráðherrann og maður hennar samt að kaupa eignina til baka í árslok 2019 á **55 milljónir króna**. Markaðsverð á þessum tíma hefur verið a.m.k. 85-90 milljónir króna og virði svona eigna í dag er að lágmarki 130-140 milljónir.
Væri fróðlegt að vita hvort fólki muni standa þetta almennt til boða, þ.e. að búa í húsinu sínu í tæpan áratug án þess að borga af lánum, kæra bankann bak og fyrir vegna nauðungarsölu en fá samt að kaupa eignina til baka á 12 ára gömlu verði.
Til að toppa þetta er svo farið í skaðabótamál við ríkið upp á 11 milljónir (heildarkrafan líklega 16-17 milljónir með vöxtum) og þegar málið tapast lætur ráðherra í ríkisstjórn Íslands það út úr sér að það sé ekki hægt að gera ráð fyrir neinu réttlæti fyrir íslenskum dómstólum!

IS

Það virðast hvorki hafa verið greiddir vextir né afborganir. Þetta lán var gengistryggt og væntanlega hækkað mjög hratt eftir hrunið en gengistengingin var metin ólögmæt 2010-11 og í fólki boðið að greiða einhverja fasta greiðslu inn á lánin. Þarna virðist samt ekkert hafa verið greitt. Ekki heldur frá 2014 þegar endurútreikningur lá endanlega fyrir.
IS

“Ekki er greitt af láninu frá 2009 til 2017, eða í 8-9 ár en samt er búið í húsinu allan tímann.”
Voru ekki einu sinni greiddir vextir? Og ef ekki teljast það þá ekki hlunnindi skattalega að búa í húsi án þess að greiða leigu í 8 til 9 ár? Bankinn bar fjármagnskostnað af húsinu allan tímann. Og að fá að kaupa á 12 ára gömlu verði þetta er kaupréttardrottning Íslands! Eru bara kaupréttir á hlutabréfum skattskyldir?
IS

@mrArnarson Maður hefur amk ekki orðið var við þessi tré í baráttunni undanfarin ár, þögn er sama og afstöðuleysi
IS

@arnih Það liggur sem sagt - án nokkurs vafa - fyrir að öll þessi tré hafi verið cís-kynja.
Get ekki séð ekki aðra ástæðu fyrir mótmælaskortinum.
Við hefðum líklega átt að spreða betur í kynjafræðilega skógrækt eins og gert var vestan hafs.
Department of Government Efficiency@DOGE
Today, the Department of Agriculture terminated 18 contracts for a total of ~$9mm, including contracts for “Central American gender assessment consultant services”, “Brazil forest and gender consultant services”, and the “women in forest carbon initiative mentorship program.”
IS





