Þegar outputið úr vélþýðingu er látið nægja :/
Veit ekki hvort mig langar til að sjá myndina. Af þessu að dæma virðist bara um 3ja flokks B-mynd að ræða.
Við eigum sum sé að borga fyrir varnargarða í kringum Bláalónið. Hversu steikt er það?
Alveg nóg að setja í kringum Svartsengi sjálft. Helmingi minna rask.
@Eirikur_J Örugglega verið rætt á ráðstefnunni í Rofadal. Hins vegar nokkuð viss um að Elrond hafi sett sig upp á móti því og bent á að það væri erfitt að réttlæta að grafa og reka svo löng jarðgöng á jafn jarðfræðilega virku svæði.
Venesúela er ekki öruggt land. Þið sem hafið rödd , plís notið hana, aðstæður og ótti flóttafólks koma okkur við. Ekki þegja.
Venesúelamenn á Íslandi reiðir og óttaslegnir visir.is/g/20232469231d
Íslensk stjórnvöld eru sek um að fá fólk til landsins á fölskum forsendum. Gabba viðkvæmt fólk á flótta með loforði um öryggi sem nú hefur verið svikið. Íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á þessu fólki sem nú þegar er komið til landsins.
Nú er ég ekki mikið fyrir boð og bönn, en... afhverju getur alþingi ekki hunskast til að setja LÖG SEM *BANNA* SÖLU OG MARKAÐSSETNINGU JÓLAVARNINGS FYRIR 1. DES.
Vanhæft Alþingi.
@erlendur Að fenginni reynslu (sem foreldri) finnst mér sýnt að farsímar eru til mikilla vandræða í skólastarfi. Kannski má bæta þetta, en þá þarf að marka stefnu um málið OG fylgja henni. Það kallar á ákveðna tilraunastarfsemi, sem mun bitna á þeim árgöngum sem ganga í gegnum það ferli.