Gulli Gislason
726 posts

Gulli Gislason
@gullisgislason
Over 18 years in financial markets | CIO and partner at Viska Digital Assets






Er Veðurstofunni stýrt af "vísindaafneitara"? Auðvitað er þessi spurning merkingarlaus þar sem vísindi er aðferð gagnrýninnar umræðu en ekki safn kennisetninga eða dogma. En aktivistar halda því gjarnan fram að þeir sem eru ósammála þeim um aðgerðir séu "vísindaafneitarar" þar sem aðgerðirnar sem þeir boða "leiði af" vísindum sem er auðvitað merkingarleysa líka þar sem gildisdómar verða ekki dregnir af staðreyndum og náttúrufræðileg lögmál segja ekkert til um hagkvæmustu efnahagskerfi eða þjóðskipulag. En gott og vel þeir aktivistar sem telja sig best til þess fallna að tala í nafni Vísindanna™️ eru hins vegar fljótir að snúa baki við Vísindunum™️ þegar þeim finnast nýjustu niðurstöður ekki nægilega krassandi. Þannig dynja nær vikulega á okkur fréttir úr öfga áróðursveitunni The Guardian um "rannsóknir" vísindamanna um að allt sé að fara í kalda kol. Á Íslandi rata auðvitað oftast fréttir í fjölmiðla um "hrun Golfstraumsins" og hafa þær borist með reglulegu millibili í að minnsta kosti 30 ár. Þessir spádómar byggja alltaf á líkönum. Líkön reyna að herma veruleikann með flóknum en takmörkuðum forsendum. En veruleikinn hefur gengist undir próf á viðnámsþrótti Golfstraumsins við breytingum á loftslagi. Þegar Ísland byggðist, fyrir litlu Ísöld var hér mun heitara og Golfstraumsins naut við. Það þarf ansi sannfærandi rök úr líkönum til að líkönin taki veruleikanum fram. Til að reyna að greiða úr hvað sé að marka í loftslagsumræðu og hvað ekki hafa Sameinuðu Þjóðirnar komið á fót IPCC til að fara yfir rannsóknir. Aktivistar vísa gjarnan til IPCC þegar þeir saka aðra um "vísindaafneitun" en þegar það kemur að þeirra eigin hræðsluáróðri eru þeir fljótir að gleyma IPCC. Nú hafa kenningar um "hrun Golfstraumsins" verið lengi á kreiki og IPCC hefur farið yfir þær kenningar. Skemmst er frá að segja að IPCC telur það afar ósennilegt eða nær útilokað. Samt éta fjölmiðlar þetta upp á fárra ára fresti og aktivistar reyna að lemja með þessu á fólki til að taka undir nýjustu delluhugmyndirnar hvort heldur sem það er að banna bíla eða plaströr. Nú kann vel að vera niðurstöður vísindamanna eigi eftir að breytast, vísindi eru jú gagnrýnin umræða sem leitast við að lýsa heiminum sífellt betur. En er þá ekki bara rétt að bíða eftir að það liggi fyrir? Losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum er ekki nema 0,08% af mannlegri losun heimsins og það er sama hversu langt aftur til steinaldar íslenska hagkerfið hverfur, það mun ekki hafa nein áhrif á loftslagið.













